Ný könnun MMR: Mikil andstaða við veggjöld 20. janúar 2011 13:03
Mikill meirihluti landsmanna er andvígur því að sett verði veggjöld til að fjármagna nýframkvæmdir í samgöngumálum. Lítill munur á afstöðu fólks eftir búsetu. Andstaðan við veggjöld mest á meðal Sjálfstæðismanna. Þetta kemur fram í nýrri könnun Markaðs- og miðlarannsókna, MMR. MMR kannaði hvort fólk væri almennt fylgjandi eða andvígt því að sett yrðu veggjöld til að fjármagna nýframkvæmdir í samgöngumálum. Mikill meirihluti þeirra sem tók afstöðu kváðust andvígir veggjöldum eða 81,9%. Lítill munur reyndist á afstöðu fólks eftir því hvort það býr á höfuðborgasvæðinu eða úti á landi. Andstaðan við veggjöld reyndist mest á meðal Sjálfstæðismanna, en 88,9% þeirra sögðust frekar eða mjög andvígir hugmyndum um veggjöld til fjármögnunar á nýframkvæmdum í samgöngumálum. Þegar niðurstöður eru skoðaðar eftir heimilistekjum eru flestir, eða rúm 23%, þeir am sem hafa tekjur yfir 800 þúsund fylgjandi veggjöldum. Athygli vekur að næst á eftir tekjuhæsta hópnum kemur sá tekjulægsti, en 21,4% þeirra sem hafa heimilistekjur undir 250 þúsund eru hlynntir veggjöldunum. Langflestir eru þó andvígir gjöldunum, sama hverjar heimilistekjurnar eru, og er andstaðan mest í millitekjuhópi þar sem heimilistekjur eru frá 250 til 399 þúsund krónur. Spurt var: Almennt séð, hversu fylgjandi eða andvíg(ur) ertu hugmyndum um að setja á veggjöld til að fjármagna nýframkvæmdir í samgöngumálum? Svarmöguleikarnir voru: Mjög fylgjandi, Frekar fylgjandi, Frekar andvígur eða Mjög andvígur. Samtals tóku 94,5% afstöðu til spurningarinnar
Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Tryggvi Gíslason er látinn Innlent Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Innlent Marius sleppur ekki eftir allt saman Erlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent Rússar vígbúast við mörk Norðurlanda Erlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Fleiri fréttir Óviðunandi að ákveðnir hópar barna búi enn við svo mikið úrræðaleysi Nýttu takmarkanir á sjúkraflugi til að þrýsta á borgina Ósáttir Grindvíkingar og undirbúningur fyrir þjóðaratkvæði að komast á fullt Fleiri andvígir inngöngu í ESB Þorsteinn Ólafsson er látinn Grikki með tugi kílóa kókaíns undir fölsku gólfi Starfsleyfi takmarkað vegna lyfjaávísana Leiðtogaskipti hjá Sósíalistaflokknum Bein útsending: Ræða öryggis- og stjórnmálasamstarf á Eystrasaltssvæðinu Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Eldhúsdagur runninn upp Fræsa og malbika Reykjanesbraut við Smáralind í kvöld Tryggvi Gíslason er látinn Öskur, reykelsisfnykur, greiðslufall og gámarót Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Sjá meira