Færði fé til að leyna halla 18. nóvember 2011 05:00 Fyrrverandi framkvæmdastjóri félagsins færði fé úr læstum styrktarsjóði til að fegra bókhald leikfélagsins. fréttablaðið/vilhelm
Fyrrverandi framkvæmdastjóri Leikfélags Akureyrar færði rúmar sjö milljónir króna út af Minningarsjóði um Jónsbók, styrktarsjóði LA fyrir listamenn, inn í rekstur félagsins til að leyna rekstrarhallanum. Einungis stjórn leikfélagsins á að hafa aðgang að sjóðnum, sem stofnaður var til að styrkja listamenn á vegum félagsins, en maðurinn sótti einsamall um undanþágu hjá bankanum og fékk aðgang að reikningnum án vitundar stjórnarinnar. Ekki komst upp um athæfið fyrr en farið var yfir bókhaldið og var honum þá gert að segja upp. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er nær engin innistæða á sjóðnum í dag, en leikfélagið hefur ákveðið að greiða upphæðina til baka eins fljótt og auðið er. Eins og fram hefur komið var Maríu Sigurðardóttur, fyrrverandi leikhússtjóra, gert að segja af sér í síðasta mánuði, þegar fjárhagsvandræði félagsins voru komin upp á yfirborðið, en leikfélagið var rekið með 67 milljóna króna tapi á síðasta ári. Í kjölfar uppsagnar Maríu var ráðinn nýr framkvæmdastjóri. Auglýsti hann stöðu verkefnastjóra lausa til umsóknar fyrr í mánuðinum og sóttu ellefu manns um. Verkefnastjórinn er með 350 þúsund krónur í mánaðarlaun, sem þýðir að LA er að greiða tvenn mánaðarlaun eftir að María hætti sem leikhússtjóri, þar sem hún er enn á starfslokasamningi. Ekki náðist í Sigrúnu Björk Jakobsdóttur, formann stjórnar LA, í gær. sunna@frettabladid.is
Mest lesið Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Innlent Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Erlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Innlent Eyvindur P. Eiríksson látinn Innlent Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Innlent Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Innlent Ákærður fyrir að brjóta á börnum Erlent Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Erlent Fleiri fréttir Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Myndbönd af banaslysinu í dreifingu og kvartanir vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Eyvindur P. Eiríksson látinn Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Tekinn á 190 þar sem má aka á 90 kílómetra hraða Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Sjá meira
Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Innlent
Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Innlent