Díoxínmengað kjöt og mjólk í Skutulsfirði 4. febrúar 2011 15:52 Sorpbrennslustöðinni Funa í Skutulsfirði var lokað um áramótin Mynd Halldór Sveinbjörnsson
Matvælastofnun, MAST, hefur fengið niðurstöður mælinga á díoxíni og díoxínlíkum efnum úr búfjárafurðum og fóðri, sem tekin voru á Vestfjörðum og í Öræfum. Þessi sýnataka fór fram í kjölfar gruns um díoxínmengun sem kom fram við sýnatöku MS í desember síðastliðnum á bæ í Skutulsfirði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá MAST. Tekin voru alls 12 sýni af kjötafurðum frá bændum í Skutulsfirði. Af þessum 12 sýnum reyndust 2 vera eðlileg og í samræmi við niðurstöður sem fengist hafa við fyrri rannsóknir á búfjárafurðum. Átta sýni sýndu verulega hækkun en þó undir hámarksviðmiðunarmörkum. Tvö sýni voru yfir hámarksviðmiðunarmörkum. Auk þessa voru tekin 6 sýni af mjólk hjá framleiðendum. Fimm sýni voru tekin á Vestfjörðum og eitt í Öræfum. Sýni tekið í Skutulsfirði reyndist yfir mörkum, hin voru eðlileg. Einnig var tekið heysýni í Skutulsfirði. Þar var um að ræða safnsýni tekið úr nokkrum heyrúllum. Þetta sýni reyndist einnig yfir hámarksviðmiðunarmörkum. MAST mun tilkynna hlutaðeigandi um niðurstöður sýnatöku, það er bændum, sveitarfélagi, heilbrigðiseftirliti, Umhverfisstofnun, Sóttvarnarlækni, afurðastöðvum og hlutaðeigandi héraðsdýralæknum. Jafnframt mun stofnunin tilkynna hlutaðeigandi, þar sem við á, um takmarkanir varðandi nýtingu búfjárafurða og fóðurs. MAST mun á næstu vikum kanna með sýnatöku heilnæmi búfjárafurða í nágrenni annarra sorpbrennslustöðva.
Mest lesið Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Innlent Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Innlent „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ Innlent Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Innlent Notaði dulnefni og sveik út vörur fyrir tugi milljóna Innlent Þyrla og björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Innlent „Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“ Innlent Trump sáir efasemdafræjum í aðdraganda þingkosninga Erlent „Þetta voru algjörlega mannleg mistök“ Innlent Vísað á brott af hjúkrunarheimilinu í annarlegu ástandi Innlent Fleiri fréttir Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Þyrla og björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ „Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“ Bæjarstjóri í beinni, gusumeistari sem biðlar til yfirvalda og sirkus Vísað á brott af hjúkrunarheimilinu í annarlegu ástandi Allt að fjörutíuföld mengun við skemmtiferðaskip Áfram Ísland með opinn fund á Skaganum Lýsa eftir Sæbjörgu Allir sem voru í ökutækjunum uppistandandi eftir áreksturinn „Þetta voru algjörlega mannleg mistök“ Endurskoða sparkvöll við Landakot Notaði dulnefni og sveik út vörur fyrir tugi milljóna „Við erum fyrst og fremst að varða leiðina heim fyrir Grindvíkinga“ Kalla inn próteinpopp „Pólitísk ákvörðun“ hvort hraðinn verði 90 eða 110 Ráðherra með „fráleita hótun“ Stærsti veðmálaviðburður sögunnar nær til ungs fólks Ógnvænleg hegðun daglegt brauð: „Það er orðin raunin í þessum bransa“ Formaður Brunavarna Árnessýslu: Málið litið mjög alvarlegum augum Einfaldur seðill flýtir ekki lokatölum Þúsundir Úkraínumanna mótmæla hrókeringum Selenskís Undirbúningur fyrir þjóðaratkvæði í fullum gangi og hækkun hámarkshraða rædd Klóraði lögreglumann og beit annan Ólafur ráðinn sveitarstjóri Skagastrandar Geri foreldra og börn að lögbrjótum Enginn framhaldsskólakennari meti stöðu nýnema mjög góða Mál Péturs slökkviliðsstjóra komið á borð lögreglu Sjá meira