Ástandið í þjóðfélaginu ekki næg ástæða til að fara á svig við lög 28. september 2011 12:23 Sveinn Arason, ríkisendurskoðandi. Mynd/Vilhelm
Ríkisendurskoðun hafnar því að slíkt neyðarástandi hafi ríkt í samfélaginu fram í mars á þessu ári, að réttlætanlegt hafi verið að víkja frá ákvæðum laga um opinber innkaup. Ríkislögreglustjóri segir að ógerlegt hafi verið að leita annað og hafnar því að hafa brotið lög. Ríkisendurskoðun telur að Ríkislögreglustjóri hafi gerst brotlegur við lög um opinber innkaup þegar hann verslaði við fyrirtæki í eigu lögreglumanna eða aðila tengdum þeim fyrir rúmlega 91 milljón króna á þriggja ára tímabili án þess að leita tilboða. Haraldur Johannessen Ríkislögreglustjóri hafnar því alfarið að hafa brotið lög um opinber innkaup. Hann bendir á að ástandið í þjóðfélaginu eftir bankahrun og í tengslum við Búsáhaldabyltinguna í janúar 2009 hafi verið þannig að snör handtök hafi þurft til að kaupa búnaðinn. Hinsvegar fóru kaup embættisins á öðrum vörum en óeirðargasi og piparúða, af einu fyrirtækinu fram á tímabilinu maí til nóvember 2008, febrúar til nóvember 2009, janúar til desember 2010 og janúar til mars 2011, löngu eftir að hinni svokölluðu Búsáhaldabyltingu var lokið, en um sautján reikninga er að ræða. Sveinn Arason Ríkisendurskoðandi sagði í samtali við fréttastofu í morgun að mat stofnunarinnar hefði ekki breyst frá því í gær. Stofnunin telji að ekki hafi ríkt slíkt ástand í samfélaginu að réttlætanlegt hafi verið að víkja frá ákvæðum laga um opinber innkaup í öllum þessum viðskiptum. Að öðru leyti vildi hann lítið tjá sig um málið og sagði boltann nú vera hjá Innanríkisráðuneytinu. Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra er staddur erlendis, og er ekki von á honum til landsins fyrr en um helgina.
Mest lesið Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Erlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Innlent Posarnir komnir í lag á ný Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Erlent Fleiri fréttir „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Sjá meira