Aðdáandi Erps lætur flúra andlit hans á handlegginn 10. febrúar 2011 07:00 Hægt er að sjá fleiri myndir af húðflúrsstofunni í myndasafninu fyrir neðan. Fréttablaðið/Vilhelm „
Þetta er sjúklega flott. Alveg geðveikt. Erpur verður hérna að eilífu," segir Þorgeir Gunnarsson, eldheitur aðdáandi Erps Eyvindarsonar og hljómsveitar hans, XXX Rottweiler. Þorgeir lét húðflúra andlit rapparans Erps Eyvindarsonar, Blaz Roca, á innanverðan framhandlegg sinn í gær. Þetta er þriðja húðflúr Þorgeirs, en hann hefur komið fram ásamt Erpi undanfarnar vikur og steig fyrst á svið með honum í Sjallanum á Akureyri í desember á síðasta ári. En hvað rekur menn í að fá sér húðflúr með mynd af uppáhaldsrapparanum sínum? „Ég er bara aðdáandi. Erpur er góður vinur minn." Myndirðu segja að þú værir aðdáandi númer eitt? „Ég veit það ekki. Ég er ekki týpan sem fer að grenja þegar ég sé hann. Ég er búinn að hlusta á hann síðan ég fékk fyrstu plötuna með honum og er að fara á svið með honum á föstudaginn. Við tökum nokkur lög saman." Heldurðu að þú eigir einhvern tíma eftir að sjá eftir að hafa fengið þér húðflúrið? „Nei." Alveg harður á því? „Já." Erpur Eyvindarson, fyrirmynd húðflúrsins, er ánægður með framtak Þorgeirs. „Þetta er ljónhart - þvílíkur fagmaður," segir hann. „Það verður þvílíkt gott þegar hann er að taka lagið með mér og rífur sig úr að ofan; massaður og flúraður með tattúið. Ég er líka alveg ljónharður á þessari mynd." Þetta er í fyrsta skipti sem aðdáandi Erps lætur húðflúra andlit hans á sig, en alþekkt er að erlendar stórstjörnur endi sem varanlegar skreytingar á líkömum fólks. „Það verða fleiri. Þetta er bara byrjunin. Þú verður kominn með svona á rassinn fljótlega." Þorgeir kemur fram ásamt XXX Rottweiler á Sódómu á föstudaginn og fær þá húðflúrið að njóta sín. atlifannar@frettabladid.is
Mest lesið Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Innlent Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Innlent Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Innlent Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Innlent Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Innlent „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Innlent Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Innlent Fleiri fréttir Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Svör Kristrúnar minni meira á Keir Starmer en Mette Fredriksen Flugvallarstæði Hvassahrauns á mesta áhættusvæði hraunflæðis Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Helmingur gæti ekki mætt 100 þúsund króna útgjöldum Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Sjá meira