Skip koma sérstaklega til Íslands til að sækja þýfi 10. febrúar 2011 10:45
Fréttir af afkastamiklum þjófagengjum hafa verið áberandi í fjölmiðlum undanfarið. Hver innbrotahrinan hefur rekið aðra og fólk hefur orðið vart við dularfulla menn, sem taka ljósmyndir af húsum þegar enginn er heima. Talið er, að þar sé um að ræða menn, sem eru að undirbúa innbrot. Lögreglan hefur haft á orði, að þjófarnir séu skipulagðari en áður og að þeir einbeiti sér að verðmætari hlutum til að stela. Þessi afkastamiklu þjófagengi, sem upprætt hafa verið nú á síðustu dögum, eru alíslensk að því er virðist, en oft hefur því verið haldið fram að útlendingar standi á bak við glæpi af skipulögðum toga, hér á landi.Hvert fer þýfið? En hvað verður um allt þetta þýfi? Hvernig koma þjófarnir því í verð? Vísir ræddi við greiningardeild Ríkislögreglustjóra til að glöggva sig á þessari hlið undirheimanna. ,,Þetta er góð spurning" segir Ásgeir Karlsson yfirmaður greiningardeildar Ríkislögreglustjora. ,,Ef við vissum svarið myndum við koma í veg fyrir þetta. Það eru ýmis viðskipti sem fara fram í undirheimunum og viðskipti með þýfi eru hluti af þeim. Það er þekkt að þýfi er notað sem gjaldmiðill í fíkniefnaviðskiptum og til greiðslu fíkniefnaskulda. Við vitum einnig til þess að þýfi sé flutt út og selt erlendis, með skipulögðum hætti, og þá er jafnvel safnað í gáma" bætir Ásgeir við. Leiða má að því líkum að það sé gert til til að lækka flutningskostnað.Skip sækja þýfið Heimildarmaður Vísis, sem þekkir vel til í undirheimum Reykjavíkur, staðfestir þetta og fullyrðir að þetta fari allt úr landi og þá jafnvel með sérstökum ferðum. ,,Það koma hérna skip og bátar sérstaklega til að sækja þennan varning. Þetta fer allt út", bætir hann við, ,,allt þetta verðmæta. Það er enginn svo steiktur í hausnum að hann fari að reyna að selja þetta í Kolaportinu eða á netinu" segir heimildarmaðurinn úr undirheimunum að lokum.
Mest lesið Faðirinn í hungurverkfalli í lokaðri móttökustöð og móðirin ein með börnin Innlent „Fyrst og fremst er verið að hafna oddvitanum“ Innlent Munaði litlu að nýliði skákaði borgarstjóra Innlent Icelandair aflýsir flugferðum Innlent Maðurinn er fundinn Innlent Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Erlent Skotinn til bana: Myndefnið þvert á orð ráðherrans Erlent Gripnir á 165 á áttatíu götu og á 157 á sextíu götu Innlent Fyrrverandi yngsti þingmaður sögunnar skiptir um flokk og fer fram Innlent Kerfið hafi brugðist Innlent Fleiri fréttir Metfjöldi vill stíga á svið með Íslenska dansflokknum Faðirinn í hungurverkfalli í lokaðri móttökustöð og móðirin ein með börnin Aðeins tíu prósent sem leita til Stígamóta kæra ofbeldið Spyr hvort að Rúv finnist hún „hundleiðinleg t***a“ „Örstutt þunglyndi yfir niðurstöðunum“ Maðurinn er fundinn Kerfið hafi brugðist Sjálfstæðismenn mynda bandalag á Akureyri Sundabraut og Fljótagöng verkefni innviðafélagsins Háværar flugvélar sem vöktu athygli í gær voru á æfingu „Fyrst og fremst er verið að hafna oddvitanum“ Fyrrverandi yngsti þingmaður sögunnar skiptir um flokk og fer fram Heiðu hafnað og fjöldi niðurfellinga heimilisofbeldismála hjá lögreglu Segir Heiðu hafa átt betra skilið Icelandair aflýsir flugferðum Fyrrverandi ráðherrar ræða alþjóðamálin Gripnir á 165 á áttatíu götu og á 157 á sextíu götu Tvö pör handtekin grunuð um líkamsárásir Munaði litlu að nýliði skákaði borgarstjóra Stóra verkefnið að vinna aftur traust borgarbúa Gríðarleg vonbrigði að reyndri konu sé ekki treyst Pétur Marteinsson kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík Samfylkingin valdi sér borgarstjóraefni Valið á milli gömlu og nýju Samfylkingarinnar Gullhúðað afnám jafnlaunavottunar Tvöfalt fleiri aldraðir leituðu hjálpar vegna ofbeldis Vandræðagangur með skilaboð á versta tíma fyrir Heiðu Leita að öðrum til að taka við Ísafjarðarfluginu Allir hafi áhuga á Íslandi Biður Dóru Björt afsökunar eftir deilur um vetrarþjónustu Sjá meira