Thor heiðraður á Riff 14. september 2011 12:15 Rithöfundurinn Thor Vilhjálmsson verður heiðraður á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík.
Rithöfundurinn sálugi Thor Vilhjálmsson verður heiðraður á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík. Stofnaður hefur verið um hann minningarsjóður. „Okkur finnst þetta mjög vel við hæfi," segir Hrönn Marinósdóttir, stjórnandi Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík. Forsvarsmenn Riff-hátíðarinnar hafa ákveðið að heiðra rithöfundinn Thor Vilhjálmsson, sem lést í vor. Stofnaður hefur verið minningarsjóður um hann og einnig verða veitt verðlaun á hátíðinni í hans nafni fyrir bestu íslensku stuttmyndina. „Thor var mjög duglegur að mæta á hátíðina og var einn okkar helsti stuðningsmaður," segir Hrönn. „Við höfðum samband við fjölskylduna hans og bárum undir hana þessa hugmynd og þessu var vel tekið." Efnt verður til heiðurssýningar á hátíðinni í minningu Thors. Sýnd verður ein af hans uppáhaldsmyndum, Ikiru eftir Akira Kurosawa, og leikstjórinn Friðrik Þór Friðriksson flytur kveðju fyrir hönd íslenskra kvikmyndagerðarmanna við það tækifæri. Verðlaun fyrir bestu stuttmyndina hafa ekki verið veitt áður á Riff-hátíðinni. Þau verða afhent af Einari Erni Benediktssyni, formanni ferða- og menningarmálaráðs Reykjavíkurborgar, við athöfn í Ráðhúsi Reykjavíkur. Í dómnefndinni sitja þau Árni Ólafur Ásgeirsson leikstjóri, Ásgeir H. Ingvarsson gagnrýnandi og Silja Hauksdóttir leikstjóri. Aldrei hafa fleiri stuttmyndir verið sendar á Riff-hátíðina í ár. Sýnd verður 21 stuttmynd eftir leikstjóra á borð við Dögg Mósesdóttur, Ísold Uggadóttur og Ara Alexander Ergis Magnússon. freyr@frettabladid.is
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Innlent Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Erlent Segja engan fund á dagskrá Erlent Fleiri fréttir Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjá meira