Nóróveira í frosnum hindberjum 4. febrúar 2011 14:45 Hindber.
Aðföng hafa tilkynnt matvælaeftirliti Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur um innköllun á Alletiders frosnum hindberjum. Um er að ræða varúðarráðstöfun þar sem Aðföngum hefur borist tilkynning frá A Frost A/S í Danmörku um að þar hafi greinst nóróveira í vörunni. Þetta er í annað skiptið sem hindber eru innkölluð af þessari ástæðu. Matvælastofnun innkallaði einnig hindber frá Euroshopper á síðasta ári vegna ótta við Nóróveiruna. Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vöruna sem innköllunin einskorðast við: Tegund innköllunar: Mengun af völdum nóróveira. Vöruheiti: Alletiders Frugt Hindbær (hindber). Umbúðir: Poki. Nettóþyngd: 250 g. Framleiðandi: Varan er framleidd fyrir A Frost A/S í Danmörku. Geymsluskilyrði: Frystivara. Pökkunardagur: 14.08.2010. Best fyrir: 14.08.2012. Strikanúmer: 5706911288784. Dreifing: Verslanir Bónuss, Hagkaupa og Stórkaupa og einnig í verslunum 10-11 Glæsibæ, Laugalæk, Staðabergi, Barónsstíg og Hjarðarhaga. Alletiders frosin hindber með ofangreindum rekjanleikaupplýsingum eru ekki lengur í dreifingu. Neytendur sem eiga í fórum sínum Alletiders frosin hindber með ofangreindum rekjanleikaupplýsingum eru beðnir að farga vörunni eða hafa samband við Aðföng í síma 530 5600 eða á netfangið gaedastjori@adfong.is. Svo líta umbúðirnar út. Einkenni nóróveirusýkinga eru vanalega ógleði, uppköst, niðurgangur og stundum magakrampar. Sumir fá að auki væga hitahækkun, hroll, höfuðverk, vöðvaverki og þreytu. Veikindin byrja skyndilega og vara stutt, yfirleitt einn til tvo daga. Almennt fá börn meiri uppköst en fullorðnir en flestir sem sýkjast fá bæði uppköst og niðurgang. Algengast er að einkenni komi fram 24 til 48 klst. eftir smitun. Er fólk þá smitandi og yfirleitt í þrjá daga eftir að einkenni hætta. Einstaklingar sem sýktir eru af veirunni ættu ekki að tilreiða mat á meðan einkenni vara og í 3 daga eftir að þeir hafa jafnað sig af veikindunum.Sýkingin er oftast nær ekki alvarlegur sjúkdómur þó fólk sé mjög veikt á meðan á henni stendur og kastar upp mörgum sinnum á dag. Flestum batnar að fullu eftir 1-2 daga. Í einstaka tilfellum getur fólk ekki drukkið nægan vökva til að endurbæta vökvamissi vegna uppkasta og niðurgangs og getur þurft á læknisaðstoð þess vegna. Slíkt ástand getur einkum skapast hjá mjög ungum börnum, þeim sem eldri eru eða hjá fólki með sem veikt er fyrir.
Mest lesið „Það var alveg skýrt að það ætti bara að drepa þetta mót hjá okkur“ Innlent Fjölskyldan í sárum og biður foreldra um að fylgjast með netnotkun barna Innlent Starmer segir af sér Erlent Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent Telur að það eigi að gera bíla upptæka vegna utanvegaaksturs Innlent „Við náðum í hnakkadrambið á þeim“ Innlent Ferðalangar utan EES ekki tryggðir vegna veikinda eða slysa Innlent Ekki lengur flestir sem útskrifast af náttúrufæðibraut Innlent Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Innlent Segir þörf á fræðslu um kyrkingartak í grunnskólum Innlent Fleiri fréttir Slagsmál tveggja í Kópavogi enduðu á slysadeild Árásin á Höfðatorgi: Þrír ákærðir fyrir tilraun til manndráps Aldrei fleiri fengið úthlutaða skólavist Kom ekki til skoðunar að gera Land Rover-jeppana upptæka BSO-stöðin komin á nýtt heimili Hrafni bjargað af þaki Byko Hlutu Vigdísarverðlaunin fyrir baráttu fyrir jöfnu aðgengi að þungunarrofi Skartgripaþjófur sigldi undir fölsku flaggi í íbúðum aldraðra „Það var alveg skýrt að það ætti bara að drepa þetta mót hjá okkur“ Segir þörf á fræðslu um kyrkingartak í grunnskólum Ferðalangar utan EES ekki tryggðir vegna veikinda eða slysa Fyrstu hvalirnir skotnir og Starmer segir af sér Fyrstu hvalirnir skotnir í nótt Reiðhjólauppboð lögreglu hefst í dag Fundu kannabisplöntur í húsi á Suðurnesjum Ekki lengur flestir sem útskrifast af náttúrufæðibraut Telur að það eigi að gera bíla upptæka vegna utanvegaaksturs Loka Sæbraut til austurs við Hörpu í kvöld Jarðskjálfti að stærð 3,1 í nótt Fjölskyldan í sárum og biður foreldra um að fylgjast með netnotkun barna Einn kærður fyrir stórfellda líkamsárás „Við náðum í hnakkadrambið á þeim“ Flytur sig í starfi um 900 kílómetra Ekkert sem bendi til fækkunar fugla við Varmá Sjósundsmaður tilkynntur til lögreglu „Það jákvæða við þetta er að þeir verða hundeltir núna“ Árekstur við Seljalandsfoss Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Eins til tveggja ára bið eftir ADHD-greiningu: „Ekki spurning að þetta getur haft áhrif á vellíðan og námsárangur“ Mótmæla hvalveiðum Sjá meira
Eins til tveggja ára bið eftir ADHD-greiningu: „Ekki spurning að þetta getur haft áhrif á vellíðan og námsárangur“