100 unglingar á æskulýðsmóti 7. febrúar 2011 12:10
Um 100 unglingar á aldrinum 13 til 16 ára og leiðtogar af Norður- og Austurlandi tóku þátt í æskulýðsmóti í Brúarási á Fljótsdalshéraði. Mótið var haldið í Brúarásskólao og þema mótsins var „Með sama hugarfari og Kristur" og vísar til þess að við erum öll ólík, en eitt, að því er fram kemur í tilkynningu. „Höfum margbreytilega hæfileika, sem við eigum að nýta hvert fyrir annað og samfélag okkar. Í þemastund á laugardeginum var fræðsla um mannréttindi, hver við erum, hvað við eigum sameiginlegt og mikilvægi þess að hugsa til þeirra sem njóta ekki mannréttinda." Á mótinu var keppt í HÆNA, hæfileikakeppni NorðAusturlands og unnið í smiðjum þar sem þátttakendur gátu látið ljós sitt skína með skapandi tónlist, leiklist og listsköpun. Einnnig var boðið upp skyndihjálparhóp, leikjahóp og fjölmiðlahóp, sem bjó til fréttablað og leituðu leiða til að ná eyrum og augum fjölmiðla, „Mótinu lauk með fjölmennri æskulýðsguðsþjónustu í Kirkjubæjarkirkju, elstu kirkju Fljótsdalshéraðs, á sunnudeginum. Þar tóku unglingarnir virkan þátt og sýndu hluta af afrakstri hópavinnu helgarinnar. Tónlistarhópur, undir stjórn Hjalta Jóns Sverrissonar tónlistarmanns, flutti gamlan sálm í nýstárlegri útgáfu með bæði hefðbundnum og óhefðbundnum hljóðfærum. Leikhópur, undir stjórn Laufeyjar Brár Jónsdóttur leikara, flutti frumsaminn leikþátt sem unninn var út frá þema æskulýðsmótsins. Unglingar leiddu bæn og lásu ritningarlestur, vígslubiskup Hólaumdæmis, sr. Jón A. Baldvinsson, predikaði í guðsþjónustunni en sr. Jóhanna I. Sigmarsdóttir sóknarprestur og sr. Hildur Eir Bolladóttir þjónuðu fyrir altari," segir einnig. Það eru Æskulýðssamband kirkjunnar á Austurlandi og Æskulýðssamband Eyjafjarðarprófastdæmis sem standa fyrir mótshaldinu. Æskulýðssjóður styrkti fræðslu á samverunni en aðrir styrktaraðilar mótsins voru: Fljótsdalshérað, Flugfélag Íslands, Glerárkirkja, Múlaprófastsdæmi og Subway.
Mest lesið Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Innlent Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Innlent „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ Innlent Notaði dulnefni og sveik út vörur fyrir tugi milljóna Innlent Þyrla og björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Innlent Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Innlent „Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“ Innlent „Þetta voru algjörlega mannleg mistök“ Innlent Gefa upp dánarorsökina vegna „ónákvæmra og rangra frétta“ af andlátinu Erlent Stefnir í fámennari Þjóðhátíð: „Við tökum þetta á langhlaupinu“ Innlent Fleiri fréttir Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Þyrla og björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ „Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“ Bæjarstjóri í beinni, gusumeistari sem biðlar til yfirvalda og sirkus Vísað á brott af hjúkrunarheimilinu í annarlegu ástandi Allt að fjörutíuföld mengun við skemmtiferðaskip Áfram Ísland með opinn fund á Skaganum Lýsa eftir Sæbjörgu Allir sem voru í ökutækjunum uppistandandi eftir áreksturinn „Þetta voru algjörlega mannleg mistök“ Endurskoða sparkvöll við Landakot Notaði dulnefni og sveik út vörur fyrir tugi milljóna „Við erum fyrst og fremst að varða leiðina heim fyrir Grindvíkinga“ Kalla inn próteinpopp „Pólitísk ákvörðun“ hvort hraðinn verði 90 eða 110 Ráðherra með „fráleita hótun“ Stærsti veðmálaviðburður sögunnar nær til ungs fólks Ógnvænleg hegðun daglegt brauð: „Það er orðin raunin í þessum bransa“ Formaður Brunavarna Árnessýslu: Málið litið mjög alvarlegum augum Einfaldur seðill flýtir ekki lokatölum Þúsundir Úkraínumanna mótmæla hrókeringum Selenskís Undirbúningur fyrir þjóðaratkvæði í fullum gangi og hækkun hámarkshraða rædd Klóraði lögreglumann og beit annan Ólafur ráðinn sveitarstjóri Skagastrandar Geri foreldra og börn að lögbrjótum Enginn framhaldsskólakennari meti stöðu nýnema mjög góða Mál Péturs slökkviliðsstjóra komið á borð lögreglu Sjá meira