Pearce: Verðum að vera með okkar sterkasta lið í sumar Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 29. mars 2011 09:30 Nordic Photos / Getty Images
Stuart Pearce segir að U-21 lið Englands muni líta illa út í úrslitakeppni EM í sumar ef hann fær ekki að taka sína sterkustu leikmenn með í keppnina. Mikið hefur verið rætt um þetta mál í enskum fjölmiðlum og þá sérstaklega hvort að Pearce fái að taka leikmenn á borð við Jack Wilshere og Andy Carroll með sér en báðir verða líklega í byrjunarliði A-landsliðs Englands sem mætir Gana í vináttulandsleik í dag. Fleiri leikmenn voru þó fjarverandi í gær þegar að íslenska U-21 landsliðið vann góðan 2-1 sigur á jafnöldrum sínum í Englandi. Pearce sagði eftir leik að allir hefðu gott af því að spila á mótinu í sumar. „Ef ég sjálfur væri að þjálfa hjá félagsliði myndi ég hvetja mína leikmenn til að spila með sínu landsliði í sumar. Þannig er ég bara gerður," sagði Pearce. „Ég tel að það mikilvægasta er að spyrja leikmennina sjálfa hvað þeir vilja gera í sumar," bætti hann við en Wilshere sjálfur hefur til dæmis lýst því yfir að hann vilji fara til Danmerkur í sumar. „Þeir myndu fá að upplifa frábært mót og fá að spreyta sig gegn bestu leikmönnum Evrópu. Við munum líta út fyrir að vera áhugamenn ef við kæmum ekki með okkar sterkasta lið." „Við höfum búið til þá mýtu að við spilum meiri fótbolta en allir aðrir í heiminum. En svo gæti spænska liðið mætt til leiks með Sergio Busquets sem varð heimsmeistari með A-liði Spánar. Þá myndum við líta út eins og hálfgerðir bjánar." Hann sagði að hann hefði lært dýrmæta lexíu í tapinu í gær. „Við vissum að Ísland væri með gott lið og þeir beittu öflugum skyndisóknum gegn okkur. Þetta er mikil vonbrigði fyrir okkur og verður vonandi til þess að við vöknum til lífsins."
Mest lesið Unnusta leikmanns fyrir aðkasti í verslun eftir leik í Árbæ Íslenski boltinn Tuchel kallaði dómara fyrsta leiks Englendinga „E-flokks-dómara“ Fótbolti Klopp segir þá halda fótboltanum í gíslingu Fótbolti „Skyldan kallar hjá kærastanum“ Fótbolti „Fyrirgefið okkur, vinsamlegast“ Fótbolti „Það sem hræðir mann er það sem er mest þess virði að gera“ Sport Sýning Svía og Diallo hetja Fílanna Fótbolti „Með mikið samviskubit gagnvart eiginkonu minni og dóttur“ Fótbolti Ísak Bergmann trúlofaður Fótbolti Féll á lyfjaprófi við að reyna að verða ólétt Sport Fleiri fréttir Amorim tekur við AC Milan Maður dagsins á HM: Bauðst að spila fyrir hitt liðið og á mág í landsliðinu Unnusta leikmanns fyrir aðkasti í verslun eftir leik í Árbæ Landsliðsfyrirliðinn á leið í safaríferð til Tansaníu „Skyldan kallar hjá kærastanum“ Sýning Svía og Diallo hetja Fílanna „Ég ætla að halda mig til hlés“ Tuchel kallaði dómara fyrsta leiks Englendinga „E-flokks-dómara“ „Fyrirgefið okkur, vinsamlegast“ Tryggði Japan jafntefli með því að skalla boltann af höfði liðsfélaga og inn „Með mikið samviskubit gagnvart eiginkonu minni og dóttur“ „Eitthvað þarf að breytast fyrir næsta leik“ Klopp segir þá halda fótboltanum í gíslingu „Smá þolinmæði sem þarf“ Real Madrid keypti Cucurella af Chelsea Þjóðverjar busuðu fámennustu þjóð í sögu HM með rassskelli Uppgjörið: Keflavík-FH 1-2 | Fyrsti sigur FH-inga í sumar Japanir mættir til að vinna heimsmeistaramótið, ekki til að skemmta sér Leikmenn Portúgal bera Diogo Jota-armbönd á HM Uppgjör: Þór-ÍBV 1-4 | Eyjamenn með annan stórsigurinn í röð Ísak Bergmann trúlofaður Potter spurður hvort það hafi hjálpað að vera ekki danskur Vilja sjá betri frammistöðu frá Breiðablik Fær laun greidd en fær ekki að dæma Maður dagsins: Innflytjandi sem fór snemma til Bayern Mörkin úr Bestu deildinni Fyrsti sigur á heimsmeistaramóti síðan 1990 Óvæntur varnarsigur „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Amorim talinn líklegastur til að taka við AC Milan Sjá meira