Sjoppuræningjar mæta næsta dag og kaupa kók 3. febrúar 2011 05:30 Bónusvídeó Mennirnir hótuðu starfsmönnum öllu illu og tóku peninga og sígarettur.Fréttablaðið/gva
Lögregla leitaði í gær tveggja ungra manna sem frömdu vopnað rán í Bónusvídeói í Lóuhólum í fyrrakvöld. Mennirnir réðust inn í verslunina þremur mínútum fyrir lokun, vopnaðir kúbeini og sveðju og með rauða tóbaksklúta fyrir andlitinu. Sara Guðmundsdóttir, einn eigenda Bónusvídeós, segir að ránið beri þess öll merki að hafa verið vel skipulagt. Sá mannanna sem vopnaður var kúbeini króaði fjóra viðskiptavini af og ógnað þeim svo þeir þorðu sig hvergi að hræra á meðan sá með sveðjuna bar hana upp að andliti afgreiðslumannsins, hótaði honum öllu illu og lét greipar sópa um peningakassann og sígarettuskápinn. Að svo búnu hurfu þeir út í myrkrið. Atlagan tók um mínútu. Sara segir þá ekki hafa komist undan með mikið fé, enda hafi afgreiðslumaðurinn fyrir tilviljun verið byrjaður að gera kassann upp og færa peninga á annan stað. Verslunin hefur verið starfrækt í tæp þrjú ár og á þeim tíma hefur verið brotist inn í hana um tíu sinnum og þrjú vopnuð rán framin. „Sökudólgarnir nást sjaldnast en krakkarnir sem vinna þarna þekkja þetta lið," segir Sara. „Það er bara svo rosalega erfitt að sanna eitthvað á þá þegar þeir eru með grímu fyrir andlitinu þó svo við sjáum allt mjög vel og þekkjum jafnvel fötin þeirra. Svo eru þetta bara krakkar sem mæta daginn eftir í sjoppuna eins og ekkert hafi í skorist og kaupa sér kók. Ég býst við því að þetta sé svipað mál." - sh
Mest lesið Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Erlent „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni Erlent Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Fleiri fréttir Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Sjá meira