City mun líklega sekta Tevez aftur Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 10. nóvember 2011 09:30 Carlos Tevez í leik með Manchester City í haust. Nordic Photos / Getty Images
Carlos Tevez er aftur búinn að koma sér í vandræði hjá Manchester City eftir að hann fór heim til Argentínu í leyfisleysi. Tevez hélt til Argentínu á mánudaginn en talsmaður hans sagði við fjölmiðla í Englandi í gær að Tevez hafi í nokkur skipti reynt að ná tali af Mancini vegna ferðarinnar en án árangurs. Leikmenn City fengu frí á þriðjudaginn en Tevez átti að mæta á æfingu í gærmorgun - sem hann gerði ekki. „Honum var sagt að þetta væri undir Mancinni komið og Carlos reyndi ítrekað að ná tali af honum. En hann fékk engin viðbrögð. Hann reyndi svo aftur að ná í hann í gær (þriðjudag) eftir að hann kom til Argentínu en ekkert gekk,“ sagði talsmaðurinn. Talsmaður Manchester City segir að Tevez hafi fengið skýr skilaboð frá félaginu um að hann ætti að mæta á æfingar hjá félaginu til að koma sér aftur í leikform. „Félagið hefur sett sig í samband við Carlos og hann hefur verið minntur á að til þess er ætlast að hann mæti á morgun (í dag) til að viðhalda sinni æfingaáætlun,“ sagði talsmaður City í samtali við enska fjölmiðla í gærkvöldi. Enskir fjölmiðlar telja líklegt að Tevez verði sektaður um 400 þúsund pund vegna ferðarinnar til Argentínu. Áætlað er að hann hitti forráðamenn City á fundi á mánudag en þá verði framhaldið ákveðið. Nýbúið er að sekta Tevez um tveggja vikna laun fyrir að neita að koma inn á sem varamaður í leik Manchester City í Meistaradeildinni fyrr í haust. Nú fyrr í vikunni bárust svo fregnir af því að Tevez sætti sig við þá refsingu. Talið er að hann hafi viljað fara til Argentínu til að hvíla sig eftir þessa viðburðarríku vikur en hvíldaferðin hefur nú aðeins skapað honum frekari usla.
Mest lesið Leik lokið: Tindastóll - Stjarnan 77-82 | Stjarnan er Íslandsmeistari Körfubolti „Þakka Guði fyrir að leyfa mér að upplifa þetta“ Körfubolti „Körfuboltaguðirnir voru búnir að ákveða“ Körfubolti Amorim vildi ekki ræða framtíðina Fótbolti Ægir valinn verðmætastur Körfubolti Tottenham vann Evrópudeildina Fótbolti „Okkur er alveg sama núna“ Fótbolti Sjáðu markið sem tryggði Tottenham titilinn Fótbolti Shaq segist hundrað prósent Körfubolti Sveindís til félags í eigu stórstjarna Fótbolti Fleiri fréttir Amorim vildi ekki ræða framtíðina „Okkur er alveg sama núna“ Sjáðu markið sem tryggði Tottenham titilinn Tottenham vann Evrópudeildina Sveindís til félags í eigu stórstjarna Játar sök vegna smygls á 60 kílóum af kannabisi Vázquez víkur fyrir Trent Flestir vonast eftir sigri Spurs í kvöld Bellingham þarf að fara í aðgerð Mikilvægasti leikur í sögu Man. Utd Yamal tekur við tíunni hjá Barcelona Kona Calvert-Lewin varð fyrir barðinu á netníðingum Þeir bestu ( 10.-9. sæti): Hörkutól með hæfileika Guardiola hótar að hætta „Að vinna Evrópudeildina mun ekki leysa öll okkar vandamál“ „Verð aldrei trúður“ „Manchester er heima“ Sveinn Aron skoraði, lagði upp og klúðraði vítaspyrnu Rómverjar vilja Nuno sem gæti verið ósáttur í Skírisskógi De Bruyne kvaddur með stæl „Finnst áran yfir þessu Þróttaraliði virkilega góð“ Frimpong í læknisskoðun hjá Liverpool og Kerkez í launaviðræðum Pepe Reina leggur hanskana á hilluna Beckham varar Manchester United við Áhyggjulaus yfir þátttöku landsliðskvenna á spennandi móti: „Þar til einhver meiðist“ Titilbaráttan ræðst á föstudag eða í úrslitaleik á mánudag Sigurður Breki viðbeinsbrotinn og frá í fjórar vikur Skemmtikrafturinn spilar ekki meira fyrir nýliðana Nýtt sjónarhorn færir Arnari fullnaðarsigur Þeir bestu (15.-11.): Rótarskot frá Skotlandi og El Salvador, sögurnar af Sigga og gullfóturinn Sjá meira