Öll tölvuspor eru rekjanleg 25. janúar 2011 14:00 Þróunarstjóri tölvuþjónustunnar Snerpu á Ísafirði segir nettengdar tölvur ætíð skilja eftir sig spor. Fréttablaðið/Heiða
Hvað var tengd fartölva að gera í varaþingmannaherbergi Alþingis í fimm vikur? „Þegar tölvu er plantað til að snuðra þá sæjust um það merki bæði í henni sjálfri og hjá þeim sem snuðrað var hjá. Ég held að við séum að tala um storm í vatnsglasi. En málið er alvarlegt, því það sýnir fram á að þetta er hægt," segir Björn Davíðsson, þróunarstjóri tölvuþjónustufyrirtækisins Snerpu á Ísafirði, um litlu fartölvuna sem fannst í varaþingmannaherbergi Alþingis á 5. hæð í Austurstræti fyrir tæpu ári. Eins og komið hefur fram var fartölvan tengd við tölvukerfi Alþingis frá 28. desember 2009 til 2. febrúar 2010 þegar starfsmaður Alþingis fann hana á skrifstofu nefndarsviðs Alþingis sem sjaldan er notuð. Nokkrir þingmenn Sjálfstæðisflokks og Hreyfingarinnar eru með aðstöðu á sömu hæð auk þess sem Þingvallanefnd er með aðstöðu þar. Ásta R. Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, sagði í samtali við Fréttablaðið tölvuvarnir Alþingis hafa aðeins gert ráð fyrir utanaðkomandi árás. Nú er búið að herða reglur og bæta varnir. Helgi Bernódusson, skrifstofustjóri Alþingis, segir ógerning að vita hver geti hafa komið tölvunni fyrir í herberginu því mikil umferð sé um húsið. Þeir sem vilji inn í húsið þurfa að bera á sér rafrænt auðkenni eða að hringja í þingvörð til að komast inn. Skrá er ekki haldin um þá sem fara um húsið. Tölvudeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur haft tölvuna til rannsóknar í ár. Erfitt hefur verið að finna eiganda hennar því auðkenni höfðu verið afmáð auk þess sem svo virðist sem hún hafi verið forrituð með þeim hætti að allt efni á harða diski eyddist sjálfkrafa þegar slökkt var á henni. Þá voru engin fingraför á tölvunni ef frá eru skilin þau sem starfsmenn Alþingis skildu eftir sig. Þeir sem Fréttablaðið hefur rætt við og þekkingu hafa á tölvunjósnum segja tvenns konar aðferðir helst notaðar. Auðveldasta leiðin sé að tengja tölvu við kerfið með beinum hætti líkt og gert var á skrifstofu Alþingis. Allt fari þetta þó eftir því hvaða upplýsingum sé verið að fiska eftir. Hin leiðin sé að brjótast inn í tölvukerfið með vírus. Sá hugbúnaður þurfi að vera háþróaður. Flestir eru sammála um að sama hvaða aðferð sé notuð skilji tölvuinnbrot í flestum tilvikum eftir sig ummerki. Sama hvað gert sé til að hindra það megi ætíð grafa eitthvað upp. Það sama á við ef hugbúnaður tölvunnar er þannig gerður að hann miðli upplýsingum um þráðlaust net í fartölvu sem staðsett er í öðrum hluta hússins. „Það er mjög erfitt að fela slóðina," segir Björn hjá Snerpu en ítrekar að hann viti lítið um tölvuna á skrifstofum Alþingis fyrir utan það sem hann lesi í fjölmiðlum. Það sama gildir um þau Ástu R. og Helga Bernódusson, sem hvorugt hefur séð tölvuna. jonab@frettabladid.is
Mest lesið Stungumanni í Bankastrætismálinu aftur stungið í steininn Innlent Farþegar látnir sofa á gólfinu á hóteli í Keflavík Innlent Hátt í tveggja tíma veðmálaauglýsing í boði Rúv Innlent Bíll konunnar sást á upptöku Innlent Fjöldi látinn eftir rútuslys í New York Erlent „Versti tíminn, allra versti tíminn“ Innlent Sjö ára hlaupari kemur hópnum yfir línuna í sjötta maraþoninu á morgun Innlent Grjóthart nei hjá dúxinum í Yale Innlent Gamall þristur strand vegna skorts á bensíni Innlent Þáttastjórnendum X-sins sagt upp Innlent Fleiri fréttir Stungumanni í Bankastrætismálinu aftur stungið í steininn Sjö ára hlaupari kemur hópnum yfir línuna í sjötta maraþoninu á morgun Skoða að flýta aðgerðum í húsnæðismálum til að ná tökum á verðbólgunni „Versti tíminn, allra versti tíminn“ Gamall þristur strand vegna skorts á bensíni Hátt í tveggja tíma veðmálaauglýsing í boði Rúv Hraðbankinn ófundinn, hungursneyð og skólar hefjast Farþegar látnir sofa á gólfinu á hóteli í Keflavík Grunaður hraðbankaþjófur í gæslu eftir allt saman Þurfa að bíða lengur eftir að komast í Sundhöllina Bíll konunnar sást á upptöku Þáttastjórnendum X-sins sagt upp Líta málið „mjög alvarlegum augum“ Hella áfenginu niður og hringja í foreldra Tuttugu milljónir í bankanum og kona í gæsluvarðhaldi Rigning og rok í methlaupi Sleppt úr gæsluvarðhaldi en málið enn til rannsóknar Hlaup hafið úr Hafrafellslóni Hungursneyð lýst yfir og forsætisráðherra segir alþjóðasamfélagið ráðalaust Aðstoðar allt að fimmtán ára gömul börn að hætta með bleyju Hungursneið á Gasa, strokulaxar og metþátttaka í Reykjavíkurmaraþoni Grjóthart nei hjá dúxinum í Yale Áfall fyrir RIFF Skipar samningateymi um uppbyggingu Víkings á Markarsvæði Leituðu ítrekað í geymslur stofnunar Tillaga um að stækka Hótel Flatey felld Landsmenn allir harmi slegnir Sósíalistar og Rússlandsvinir undir eitt þak „Kannski verður maður grátandi hálft hlaupið, en þá bara er það þannig“ Bærinn hefur afhent lögreglu myndefni í tengslum við hraðbankaránið Sjá meira