Rakst á Önnu Wintour 23. september 2011 10:30 Brynja á tískupallinum fyrir hönnuðinn Roksöndu Ilincic. Nordicphotos/Getty „
Þetta er búið að ganga vel og ég man ekki einu sinni hvað ég var á mörgum sýningum," segir Brynja Jónbjarnardóttir fyrirsæta en hún var að vinna á nýafstaðinni tískuviku í London. Brynja er 17 ára gömul og flutti út til London fyrir tíu dögum en hún hyggst láta reyna á fyrirsætustarfið næsta árið. Hún sýndi meðal annars sumartískuna fyrir hönnuðina Danielle Scutt og Roksöndu Ilincic, en síðarnefnda sýningin var hennar uppáhalds. „Það var rosalega flott sýning í gömlum kastala og falleg píanótónlist var spiluð undir. Á meðan ég stóð baksviðs og beið eftir að sýningin byrjaði rakst ég á Önnu Wintour. Það var skemmtilegt að sjá hana í eigin persónu," segir Brynja en Wintour er áhrifamikil í tískuheiminum enda ritstjóri hins bandaríska Vogue.Brynja á tískupallinum fyrir hönnuðinn Danielle Scutt.Nordicphotos/GettyÞegar Fréttablaðið náði tali af Brynju var hún að vinna að verkefni fyrir fatahönnuðinn Tom Ford. Ford er mjög virt nafn í tískuheiminum en hann var yfirhönnuður bæði Gucci og YSL tískuhúsanna. Brynja var ráðin, ásamt tveimur öðrum fyrirsætum, til að sýna sumarlínu Ford næstu þrjár vikurnar en mikil leynd hvílir yfir fatnaðinum frá Ford í ár. „Ég er bæði að sitja fyrir í myndatökum og svo á lokuðum tískusýningum fyrir útvalda inn á milli. Þetta er hörkuvinna frá 8 til 19 alla daga en skemmtilegt og mjög falleg föt, meira má ég ekki segja." Foreldrar Brynju styðja hana í vinnu sinni en hún stundar fjarnám við Fjölbrautaskólann við Ármúla samhliða fyrirsætustarfinu. „Þau sakna mín mikið og ég þeirra en þau ætla að heimsækja mig sem fyrst," segir Brynja. Hún er mikið á flakkinu og heldur beint til New York þegar törninni í London lýkur. „Ég hef gaman af að ferðast og á meðan mér gengur vel held ég áfram." - áp
Mest lesið „Hélt það væri ekki hægt að bjarga mér“ Lífið Fólk undraðist að þær héldu barni frá skjám fyrstu tvö árin Lífið Oddvitaáskorunin: Ófeiminn að taka undir þegar Frelsið tekur að óma Lífið Fyrsta jarðarförin í Flatey í 69 ár varð undursamlegt ævintýri Lífið Shakira söng fyrir milljónir á Copacabana Tónlist Krakkatía vikunnar: Kirkjur, Gljúfrasteinn og nornahár Lífið „Bíddu, þetta er satt. Ég er með átröskun“ Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Guðmundur og Erna eru gift Lífið Fleiri fréttir Skoðunarferð um nýja Landspítalann á HönnunarMars Oddvitaáskorunin: Ófeiminn að taka undir þegar Frelsið tekur að óma Fólk undraðist að þær héldu barni frá skjám fyrstu tvö árin „Hélt það væri ekki hægt að bjarga mér“ Krakkatía vikunnar: Kirkjur, Gljúfrasteinn og nornahár Guðmundur og Erna eru gift Mörg þúsund „glataðir ljósmyndarar“ sóttu um „Bíddu, þetta er satt. Ég er með átröskun“ Fögnuðu nýrri líkamsræktarstöð í Grímsbæ Fyrsta jarðarförin í Flatey í 69 ár varð undursamlegt ævintýri Fréttatía vikunnar: Sjúkrabíll, guðshús og koss dauðans Oddvitaáskorunin: Ice ekki lengur eins viðeigandi viðurnefni vestanhafs Birna María og Egill eignuðust dreng Oddvitaáskorunin: Að stöðva Borgarlínuna efst á lista Reyndist sannspár um koss dauðans Britney ákærð fyrir ölvunarakstur „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjá meira