110 prósent leiðin of flókin - afstaða Lýsingar illskiljanleg 23. september 2011 11:18
110 prósent úrræðið var útfært of þröngt og hefði mátt vera einfaldara og þar með fljótlegra í framkvæmd. Úrræðið fór seint af stað og var ekkert auglýst í byrjun. Þetta er meðal annars mat eftirlitsnefndar til efnahags- og viðskiptaráðherra um aðgerðir í þágu einstaklinga, heimila og fyrirtækja vegna banka- og gjaldeyrishrunsins. Þar segir að með því að miða við 110% af fasteignamati í stað markaðsvirði ódýrari eigna, láta aðrar aðfararhæfar eignir ekki dragast frá niðurfærslu að ákveðnu marki og taka upp fríeignamark með fastri fjárhæð, hefði mátt einfalda og flýta málum að mati nefndarinnar. Úrræðið var erfitt í framkvæmd að mati nefndarinnar. Nefndin bendir á að lántakar með lánsveð hjá 3ja aðila fá minni skuldaniðurfellingar en þeir sem voru með 80-100% lán hjá bönkunum. Nefndin fer svo fram á að lánþegum, sem þegar hafa fengið mál sín afgreidd, eigi þess kost að fá endurmat hafi verðmat annarra aðfararhæfra eigna haft áhrif á niðurstöðu fyrra mats.Sértæk skuldaaðlögun í skammakróknum Svo segir nefndin um sértæk skuldaaðlögun að úrræðið sé í hálfgerðum skammakrók hjá fjármálafyrirtækjunum. Úrræðið felur í sér mikla vinnu þess fjármálafyrirtækis sem er umsjónaraðili og samvinnu allra kröfuhafa, sem er vissulega flóknara en þegar eitt fjármálafyrirtæki semur við sjálft sig. Mál eru oft flókin sem veldur því e.t.v. að reynt er að beita öðrum úrræðum sem ekki krefjast samninga við aðra kröfuhafa að þvi greinir frá í skýrslu nefndarinnar. Fjármálafyrirtækin virðast vera tilbúin til að veita úrræði sem snúa eingöngu að þeim sjálfum og eru þ.a.l. einfaldari í framkvæmd, þó svo að þau úrræði gagnist eignafólki og/eða þeim sem ekki eiga við greiðsluvanda að stríða. Þessi úrræði einkennast af að vera minna skilyrt en sértæk skuldaaðlögun og geta í einstökum tilvikum jafnvel leitt til meiri niðurfellinga en sértæk skuldaaðlögun. Þá kemur fram í skýrslunni að fjármálafyrirtækin halda ekki saman með skipulegum hætti upplýsingum um mál einstaklinga/heimila sem leita til þeirra vegna fjárhagsvandræða og fá aðra lausn en sértæka skuldaaðlögun eða 110% úrræði. Nefndin segir að fjármálafyrirtæki verði að taka upp skipulega skráningu mála þar sem niðurstaðan er að vægari úrræði en sértæk skuldaaðlögun sé nægileg og flokka þau eftir úrræðum.Illskiljanleg afstaða Lýsingar Þá gagnrýnir nefndin að Lýsing er ekki aðili að samkomulagi um Beinu brautina svokölluðu. Lýsing skrifaði undir samkomulag um Beinu brautina með fyrirvara um samþykki stjórnar í desember 2010. Komið hefur í ljós að stjórnin hafnaði því að Lýsing gerðist aðili að samkomulaginu og hafa önnur fjármálafyrirtæki í mörgum tilvikum gefist upp á að reyna að semja við Lýsingu. Að mati nefndarinnar er þessi afstaða stjórnar Lýsingar illskiljanleg og til þess fallin að koma í veg fyrir eða hægja á afgreiðslu fyrirtækjamála. Ekki skiptir máli að mati nefndarinnar að réttarágreiningur um lögmæti fjármögnunarleigusamninga Lýsingar hafi ekki verið útkljáður fyrir dómstólum.
Mest lesið „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent „Blóðmassinn svartur sem hel“ Innlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Innlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Innlent Fleiri fréttir Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Sjá meira