Seguljárn á hafsbotni dregur til sín Ástrala 23. september 2011 05:00 Nota á litla pramma við sýnatökur fyrstu árin.
Félagið Soley Minerals vill leyfi frá Orkustofnun til að kanna hvort vinna megi seguljárn og fleiri málma af hafsbotni við Suðurland og í Héraðsflóa. Soley Minerals er dótturfélag ástralska námuvinnslufélagins Thielorr Sarl. Samkvæmt skýrslu Soley Minerals til Orkustofnunar hyggst félagið verja fimm árum til að kanna hvort seguljárn sé hér í vinnanlegu magni. Áætlaður kostnaður þau fimm ár er 800 til 2.200 milljónir króna. Félagið hyggst fá alþjóðlega fjárfesta að verkefninu og skrá síðan félagið í Kauphöllina. Soley Minerals ætlar að beita þeirri aðferð að sjúga upp sand af hafsbotni og ná seguljárninu úr honum með seglatækni. Vinnanlegt magn er sagt þurfa að vera tíu prósent úr þeim sandi sem soginn er upp. Þegar sjálf vinnslan sé komin í gang sé áætlað að ná upp 250 þúsund tonnum af sandi í hverjum mánuði og vinsa úr honum um 25 þúsund tonn af málmi. Seguljárnið er ætlað til útflutnings. Nefnir Soley Minerals vaxandi hráefnisþörf til stálframleiðslu. Sérstaklega er bent á hin rísandi efnahagskerfi í Kína og á Indlandi. Ástralska fyrirtækið segir að hið gríðarlega magn af basaltgrjóti sem hér sé hafi hátt hlutfall af seguljárninu sem ber fræðiheitið magnetite. Málmurinn berist með fljótum landsins til sjávar og brotni þar niður í þá stærð sem hentugt sé að vinna. Stærstu agnirnar sem vinna á séu 3 millimetrar í þvermál. Hugsanleg vandamál segir Soley Minerals meðal annars vera að skilyrði í sjónum séu of erfið, að vinnanlegt magn seguljárns sé of lítið og að sandurinn sé of þéttur í sér til þess að hægt sé að beita áðurnefndri uppsogsaðferð. Vinnslan sjálf verður á pramma og utan netalaga, í minnst 115 metra fjarlægð frá stórstraumsfjöruborði. Eftir að málmurinn hefur verið skilinn frá er sandinum skilað aftur á hafsbotninn. Málminum verður síðan annaðhvort komið fyrir á geymslupramma eða í landi þar til hann verður fluttur mánaðarlega á markað ytra. Heildarmagnið sem Soley Minerals vill vinna af hafsbotni hér er þrjú hundruð milljónir tonna af málmi á einni öld. Reiknað er með að vinnslan standi í átta mánuði ár hvert. Unnið verði í Héraðsflóa á vorin og haustin þar sem meira skjól sé og fyrir utan Suðurland í fjóra mánuði þar á milli. „Skilningur okkar er sá að magnið af sandinum undan suðurströndinni sé í raun ótakmarkað og að þykkt sandsins þar sé meiri en eitt hundrað metrar,“ segir í skýrslu Soley Minerals, sem kveðst hafa hug á að sækja um einkaleyfi til fjörutíu ára með möguleika á framlengingu ef niðurstaðan af rannsóknartímabilinu reynist hagfelld. „Verkefnið getur mögulega haft veruleg áhrif á íslenska hagkerfið,“ segir Soley Minerals. Útlit sé fyrir að störf skapist fyrir á bilinu fimmtíu til tvö hundruð manns eftir stærð verkefnisins sem síðan muni hafa ýmis margföldunaráhrif. Jafnvel verði hægt að koma hér á laggirnar stálbræðslu þegar fram líða stundir. „Slík verksmiðja myndi framleiða lággæða stál sem síðan yrði flutt til Evrópu til frekari vinnslu í stálbræðslum þar.“ Sótt er um rannsóknarleyfið á grundvelli laga um eignarrétt ríkisins á auðlindum á hafsbotni. Tiltekin eru fjögur svæði undan suðurströndinni og eitt við Héraðsflóa. gar@frettabladid.is
Mest lesið Kveður klettinn í lífi sínu eftir skyndileg veikindi Innlent Þessi fjórtán hlutu fálkaorðuna á nýársdegi Innlent Tugir látnir eftir sprengingu í svissneskum skíðabæ Erlent Óttast að um fjörutíu hafi látist á skemmtistaðnum Erlent Á bak við tjöldin: „Með alls konar exit plans, trúið mér“ Innlent Kirkja í Amsterdam alelda Erlent Pétur fer á móti borgarstjóra og vill fyrsta sætið í Reykjavík Innlent Íslendingar tjá sig um skaupið: „Versta skaup ever“ eða það besta í manna minnum? Lífið Hitnar undir feldi Péturs Innlent Fluttur á sjúkrahús eftir slys í Hrútafirði Innlent Fleiri fréttir Fluttur á sjúkrahús eftir slys í Hrútafirði Pétur fer á móti borgarstjóra og vill fyrsta sætið í Reykjavík Kveður klettinn í lífi sínu eftir skyndileg veikindi Hitnar undir feldi Péturs Þessi fjórtán hlutu fálkaorðuna á nýársdegi „Líðan barna nú mun móta sögu og styrk Íslands á næstu árum“ Fleirum þykir Flokki fólksins ganga illa að hrinda málum í framkvæmd Fimmtán leituðu á bráðamóttöku vegna flugeldaslysa Fjögurra stiga skjálfti í Bárðarbungu: „Stærsti skjálftinn á árinu“ Hvetur Íslendinga til að hafna „svartagallsrausi“ Ríflega tuttugu útköll vegna eldsvoða Vill annað sætið hjá Samfylkingunni í borginni Kveðst hlakka til að mæta aftur til starfa Á bak við tjöldin: „Með alls konar exit plans, trúið mér“ Fyrsta barn ársins kom í heiminn klukkan 00:24 Miðahafi á Íslandi vann 642 milljónir í Víkingalottói Stunguárás og margar tilkynningar um flugeldaslys Gleðilegt nýtt ár kæru lesendur Vísis Eitthvað í íslensku samfélagi fjandsamlegt börnunum okkar Simmi vinsælasti leynigesturinn „Þetta er Íslandsmet, Íslandsmet í svikum“ Tal um Ingu eftir kosningar ekki til sóma Gummi lögga er maður ársins 2025 Árangur breyti ekki alltaf upplifun fólks „Viðreisn jafnvel erfiðari viðfangs en Flokkur fólksins“ Vara við hættu á sinubruna Haldlögðu metmagn af fíkniefnum á árinu Vanhelgunin ýmist skemmdarverk eða persónuleg árás Árið gert upp í Kryddsíld 2025 Hafþór Freyr maður ársins að mati lesenda Vísis og hlustenda Bylgjunnar Sjá meira