Innlent

Nefbrotinn á menntaskólaballi

Ungur karlmaður var sleginn niður og nefbrotnaði á menntaskólaballi í Gullhömrum í Grafarholti í gærkvöldi.

Hann var fluttur í sjúkrabíl á slysadeild Landsspítalans þar sem gert var að brotinu. Árásarmaðurinn var handtekinn en óljóst er hvort hann sló hinn í sjálfsvörn eða hvort þriðji aðili á ef til vill hlut að máli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×