Fálki í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn eftir árekstur við flutningabíl Jón Hákon Halldórsson skrifar 21. desember 2011 15:48 Fálkinn unir sér vel í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum.
Myndarlegur kvenfálki dvelur um þessar mundir í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum, en það var Ólafur Nielsen á Náttúrufræðistofnun Íslands sem kom með fálkann í garðinn. Fálkinn varð fyrir þeim óvenjulegu hremmingum að hann lenti framan á rúðu flutningabíls sem var á ferð við Staðastað á sunnanverðu Snæfellsnesi. Bílstjórinn sem heitir Sveinn Haukur sá þúst á veginum framundan, sem reyndist vera fálki, sem skyndilega flaug upp og stefndi fyrst frá bílnum. Fálkinn breytti um stefnu og flaug á framrúðuna og féll til jarðar í vegkantinum. Þá var Sveinn Haukur þess fullviss að fálkinn væri dauður og tók hann því upp og setti í kassa á utanverðum bílnum sem hann annars geymir keðjurnar í. Eftir um 20 kílómetra akstur athugaði Sveinn Haukur með fálkann sem tók á móti honum með útbreidda vængina þegar hann opnaði kassann. Fálkinn hafði sem sé ekki drepist við áreksturinn og Sveinn Haukur ók því með hann í Borgarnes þar sem hann býr og fann handa honum vistlegri kassa. Hann hafði samband við Náttúrufræðistofnun og fyrir tilstuðlan Ólafs Nielsen var hann færður í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn. Fálkinn hefur nú dvalið í garðinum í tæpa viku og mun dvelja þar áfram fram yfir jól og þiggur að vonum kræsingar þær sem dýrahirðar garðsins reiða fram fyrir hann. Starfsmenn garðsins segja að tíminn leiði í ljós hvort hann nái sér að fullu, en fálkanum verður sleppt um leið og tækifæri gefst til.
Mest lesið Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Innlent Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Innlent Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Innlent Eldur olli miklum skemmdum í kjallara Innlent Launahækkun Höllu illskiljanleg Innlent Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Innlent Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Erlent Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent Nánast búin með stafrófið Innlent Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Erlent Fleiri fréttir Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Ný könnun og frægasti köttur landsins Kona flutt á sjúkrahús eftir bruna í kjallaraíbúð Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Eldur olli miklum skemmdum í kjallara „Hræðsluáróður, stagl og þvæla sem stjórnarandstaðan ætlar að keyra á“ Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Nánast búin með stafrófið Útlit fyrir flókna meirihlutamyndun í borginni Launahækkun Höllu illskiljanleg Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Öll tólf mánaða börn fá leiksskólapláss í Kópavogi Vilja að fullorðnir lofi að búa til rými þar sem börn geta sagt frá Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Bein útsending: Samtal um atvinnustefnu og aðgerðir í þágu verðmætasköpunar Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Inga sendir boltann á sveitarfélögin „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Vill verja hundruðum milljóna í þegar dýrt leikskólakerfi „Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Sjá meira