Formaður UMFN ætti að segja af sér 16. febrúar 2011 10:00 Keflavíkurflugvöllur. Stefán Thordersen gegndi stöðu öryggisfulltrúa á Keflavíkurflugvelli þegar hann áreitti samstarfskonu kynferðislega.
Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður Ungmennafélags Íslands (UMFÍ), segir að Stefán Thordersen, formaður Ungmennafélags Njarðvíkur (UMFN), eigi að segja af sér formennsku. Héraðsdómur Reykjaness komst að þeirri niðurstöðu í síðustu viku að Stefán hefði áreitt samstarfskonu sína kynferðislega í vinnutengdri sumarbústaðarferð með því að bera sig fyrir framan hana í heitum potti og reyna að ryðjast nakinn inn í svefnherbergi hennar. Stefán gegnir formennsku í stjórn UMFN. Helga Guðrún segir að ef sambærilegt mál kæmi upp innan UMFÍ væri það litið afar alvarlegum augum og viðkomandi yrði að öllum líkindum látinn segja upp störfum sínum fyrir félagið. Helga Guðrún Guðjónsdóttir „Það eru allir saklausir uns sekt er sönnuð, en í þessu tilviki er búið að dæma manninn sekan," segir Helga Guðrún. Blátt áfram, samtök sem efla forvarnir gegn kynferðislegu ofbeldi á börnum á Íslandi, voru fyrst sett á fót fyrir alvöru innan UMFÍ. Félagið hélt þá utan um framkvæmd stofnunar Blátt áfram, réð starfsmann og hafði einnig umsjón með fjárframlögum. Helga Guðrún telur að í ljósi þess að Stefán hafi verið dæmdur sekur í kynferðisbrotamáli sé óviðeigandi að hann gegni starfi sínu áfram innan UMFN. Helga Guðrún hefur sjálf reynt að ná sambandi við Stefán eftir að dómurinn féll, en hann hefur ekki látið ná í sig. Stefán starfar sem yfirmaður öryggissviðs á Keflavíkurflugvelli. Þar er hann í leyfi frá störfum þar til stjórn Isavia hefur komist að niðurstöðu um framhaldið. Hjördís Guðmundsdóttir, upplýsingafulltrúi Isavia, segir að enn sé verið að skoða málið. Spurð hvort hún viti hvenær niðurstaða fáist svarar hún: „Finnst þér líklegt að ég fari að tjá mig um það?" Þegar konan sem Stefán áreitti lét fyrst vita af því innan fyrirtækisins var málið ekki skilgreint sem kynferðisleg áreitni. Stefán var þó áminntur af yfirmönnum. Hvorki náðist í Stefán, Þórunni Friðriksdóttur varaformann UMFN, né Brynju Vigdísi Þorsteinsdóttur framkvæmdastjóra í gær. sunna@frettabladid.is
Mest lesið Kourani farinn úr landi Innlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Systir Haraldar er látin Erlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla Innlent Fleiri fréttir Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Sjá meira