Eriksen: Vildi frekar fá Ísland áfram Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 19. júní 2011 14:15 Eriksen fylgist með Jóhanni Berg í Álaborg í gær Mynd/Anton
Christian Eriksen, leikmaður danska U-21 landsliðsins, segir það ótrúleg niðurstaða að Hvíta-Rússland hafi komist áfram í undanúrslitin á EM í Danmörku. Ísland vann í gær 3-1 sigur á Danmörku en sigurinn dugði ekki til að komast áfram. Þá hefði annað hvort 3-0 eða 4-1 sigur þurft til. Hvíta-Rússland tapaði fyrir Sviss, 3-0, í gær en kemst engu að síður áfram á hagstæðu markahlutfalli í innbyrðisviðureignum sínum gegn Danmörku og Íslandi. „Það er sorglegt að Hvíta-Rússland hafi komist áfram, sérstaklega þar sem við unnum þá. Ég hefði frekar kosið að Ísland hefði komist áfram,“ sagði Eriksen við danska fjölmiðla eftir leikinn í gær. Hann sagði að leikurinn gegn Íslandi í gær hafi verið dæmigerður fyrir þáttöku danska liðsins í mótinu. „Þannig var þetta í næstum hverjum einasta leik - boltinn vildi bara ekki inn,“ sagði Eriksen en Danir áttu 26 marktilraunir í gær en skoruðu bara eitt mark. Ísland átti sautján en skoruðu þó þrjú mörk. Bæði lið féllu úr leik á Evrópumeistaramótinu í gær þar sem að Hvíta-Rússland var með besta markahlutfallið í innbyrðisárangri þessara þriggja liða. Hvít-Rússar fylgdu því Svisslendingum, sem unnu alla sína leiki í riðlinum, áfram í undanúrslitin. „Mér finnst að þeir sem fengu færin og skutu að marki hafi brugðist - þeirra á meðal ég,“ sagði Eriksen sem átti langt í frá sinn besta leik í gær. Hann sýndi þó lipra takta inn á milli. „Við vildum komast á Ólympíuleikanna og sjálfur var ég mjög spenntur fyrir því. Við áttum möguleika á því en köstuðum honum fyrir borð,“ bætti Eriksen við. Liðsfélagi hans, Nicolai Boilesen, tók í sama streng. „Það var ekki nógu gott hvað við skoruðum lítið en við verðum líka að skoða varnarleikinn okkar. Íslendingar skoruðu þrjú mörk og það er alls ekki nógu gott. En 26 skot á markið - það segir allt sem segja þarf.“ „Við getum þó engum öðrum kennt um þetta en okkur sjálfum. Við leyfðum þeim að skora þrjú mörk í þessum leik.“
Mest lesið „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Enski boltinn Kushner tjáir sig formlega um söluna á heimsmeistaramótinu Fótbolti Sveindís skoraði í langþráðum sigri Fótbolti Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Enski boltinn „Stemning í hópnum og við reynum að láta verkin tala“ Sport „Óöruggir og við þurfum að laga það“ Sport Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Enski boltinn Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Enski boltinn Ísland - Tyrkland 73-110 | Tyrkirnir reyndust of stór biti fyrir strákana okkar Körfubolti Barcelona með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir Fótbolti Fleiri fréttir „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sjáðu Stjörnuna klára Blika Sveindís skoraði í langþráðum sigri Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Kushner tjáir sig formlega um söluna á heimsmeistaramótinu Barcelona með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Vandræði Sønderjyske halda áfram þegar liðið tapaði manni færri Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Glódís Perla hélt hreinu þegar lið hennar jafnaði met „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Messi leggur landsliðsskóna á hilluna Sjáðu þrennu Hlínar Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Sjáðu geggjað mark Kristófers og öll hin úr Bestu Af Skaganum til Lyngby Nýtur frelsis undir stjórn Mourinho Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Albert sagður stefna í höfuðborgina „Sköpuðum færi eftir færi allan leikinn“ „Stálheppnir að ná í þetta stig“ Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Sjá meira