Pato og Neymar tryggðu Brasilíu efsta sætið Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 14. júlí 2011 09:45 Robinho, Neymar og Maicon fagna marki í gærkvöld. Nordic Photos/AFP
Brasilía sýndi loks sitt rétta andlit þegar liðið vann 4-2 sigur á Ekvador í lokaumferð B-riðils Suður-Ameríkukeppninnar í knattspyrnu. Alexandre Pato og Neymar skoruðu tvö mörk hvor en Felipe Caicedo jafnaði í tvígang fyrir Ekvador. Venesúela og Paragvæ fóru bæði áfram þrátt fyrir 3-3 jafntefli. Brasilía, sem hefur unnið keppnina í fjögur af síðustu fimm skiptum, sýndi loks klærnar gegn Ekvador. Með Maicon í hægri bakverðinum og Robinho í framlínunni litu þeir mun betur út en í fyrstu tveimur leikjunum. „Þetta var besti leikur Brasilíu í keppninni hingað til,“ sagði Mano Menezes þjálfari Brasilíu. Áhorfendur fengu einnig sex marka veislu í viðureign Paragvæ og Venesúela. Paragvæar voru með pálmann í höndunum skömmu fyrir leikslok tveimur mörkum yfir en Venesúela skoraði tvö í viðbótartíma og jafnaði metin. Framganga Venesúela á mótinu hefur þótt athyglisverð. Þjóðin sem hingað til hefur verið aðhlátursefni í suður-amerískri knattspyrnu er ósigruð. Brasilía, Paragvæ og Venesúela enduðu jöfn með fimm stig en Brasilía endaði efst á markatölu.Viðureignirnar í 8-liða úrslitumLaugardaginn 16. júlí Argentína - Úrúgvæ Kólumbía - PerúSunnudaginn 17. júlí Brasilía - Paragvæ Chile - Venesúela Allir leikirnir verða í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2.
Fótbolti Mest lesið Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Jesus sveik lærisveininn Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Enski boltinn „Ronaldo er elsta frekjudolla í heimi“ Sport Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Handbolti Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Enski boltinn Tekur strax við sjöunni af Ronaldo Fótbolti Fleiri fréttir Skoraði sitt fyrsta mark í Meistaradeildinni Danmörk - Portúgal | Lífið án Ronaldos Írland - Austurríki | Lykilleikur fyrir Heimi í miðjum stormi Enn er penninn á lofti í Laugardal Hættur við að hætta við að hætta Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Tekur strax við sjöunni af Ronaldo Jesus sveik lærisveininn Fékk gráðuna fyrir viku og lék í djörfu myndbandi Litlu finnsku uglurnar slá í gegn Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Yfirmenn Heimis teknir á teppið Tók boltann með höndum og kostaði Arsenal tvö stig Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Þýsku meistararnir unnu stórsigur í Meistaradeildinni Ída Marín skoraði í stórsigri í Evrópubikarnum Hlín og félagar á leið í 16-liða úrslitin sannfærandi Uppgjörið: Czarni - Breiðablik 1-0 (7-2) | Áttu aldrei séns Ronaldo tilkynnir að hann sé á förum frá landsliðinu Diljá Ýr skaut Brann í 16-liða úrslitin Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Uppgjörið: Frankfurt - FH 4-1 | Stórliðið batt enda á Evrópudraumi FH Kvartaði í forsetann þegar hann fékk ekki að spila Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Sjá meira