Innlent

Forseta Hells Angels á Íslandi vísað frá Noregi

Einar Marteinsson á bifhjólinu sínu.
Einar Marteinsson á bifhjólinu sínu.
„Ég var handtekinn í gær og mér hent í gæsluvarðhald. Svo var mér flogið frá Noregi til Íslands í dag," sagði Einar Marteinsson, forseti Vítisenglanna á Íslandi, en hann er einn af þremur Vítisenglum sem var snúið við í Noregi í gær af þrjúhundruð. Hinir voru frá Englandi og Frakklandi.

Evrópumót norsku Vítisenglanna fer nú fram í Noregi en um þrjúhundruð Vítisengla er í landinu. Þar er meðal annars fagnað fimmtán ára afmæli norska Vítisenglaklúbbsins.

Einar segir í viðtali við Vísi að hann hafi flogið til Danmerkur og þaðan til Noregs. Þegar hann kom til landsins var hann handtekinn ásamt tveimur öðrum Vítisenglum. Þeir voru svo sendir heim í lögreglufylgd. Aftur á móti fóru alls átta íslenskir Vítisenglar til Noregs, og komust þeir allir inn í landið.

Einar er ósáttur við móttökurnar, þá ekki síst vegna þess að Noregur var aðeins áningarstaður áður en hann ætlaði að ferðast til Svíþjóðar og þaðan til Þýskalands. Hann þarf því að fljúga aftur út á morgun, en í þetta skiptið til Svíþjóðar.

„Ég er búinn að kæra þessa ákvörðun," segir Einar en samkvæmt norskum fjölmiðlum voru Vítisenglunum vísað úr landi á grundvelli útlendingalaga.

Sjálfur segir Einar að hann hafi ekki brotið nein lög í landinu. Þá er hann ekki á skilorði og allnokkur ár síðan hann komst í kast við lögin. Þá fyrir líkamsárás.

Hann segist því ekki átta sig á því hversvegna honum hafi verið snúið við, né hinum Vítisenglunum.

„Það eina sem mér dettur í hug er að hinir náungarnir eru mjög þekktir í sínum heimalöndum fyrir tengsl sín við Hells Angels," sagði Einar.

Spurður hvort hann búist við því að verða stöðvaður í Svíþjóð á morgun svarar hann: „Maður veit aldrei þessa dagana."

Málið er keimlíkt því sem átti sér stað á Íslandi fyrir nokkrum árum. Þá var leiðtoga norsku Vítisenglanna meinað inngöngu í landið ásamt nokkrum öðrum Vítisenglum. Hann kærði þá ákvörðun og verður það mál þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur á næstu vikum að sögn Einars.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×