Innlent

Helmingur bifhjóla í ólagi

Lögreglan skoðar bifhjól.
Lögreglan skoðar bifhjól. Mynd / Lögreglan
Ástand bifhjóla virðist misgott ef marka má niðurstöður skyndiskoðunar sem lögreglan, í samvinnu við Umferðarstofu og skoðunarstöðvar, stóð fyrir í vikunni.

Rúmlega helmingur hjólanna, sem var tekin til skoðunar, reyndist í lagi en hin ekki. Aðfinnslur sneru einkum að pústkerfi hjólanna og ófullnægjandi skráningarmerkjum.

Einnig voru gerðar athugasemdir ef vantaði spegla og stefnuljós, svo dæmi séu tekin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×