Tveir Ítalir fara yfir Friðarsúluna Boði Logason skrifar 16. september 2011 14:39 "Það er eitthvað um þrjátíu þúsund krónur á mann með gistingunni,“ segir Hafþór um kostnað borgarinnar fyrir dvöl þeirra hér á landi. Mynd/AntonBrink
Tveir menn frá ítalska fyrirtækinu Space Cannon eru staddir hér á landi vegna viðhalds á Friðarsúlunni í Viðey. Kostnaður Reykjavíkurborgar er um sextíu þúsund krónur vegna dvalar þeirra hér á landi. Í ár eru fjögur ár frá því að kveikt var á súlunni fyrsta skiptið en þetta er í annað skiptið sem mennirnir koma hingað til lands til að athuga hvort súlan sé í lagi. Hafþór Yngvason, safnstjóri hjá Listasafni Reykjavíkur sem ber ábyrgð á öllum útilistaverkum borgarinnar, segir að mennirnir frá Space Cannon séu að yfirfara tækjabúnaðinn en fyrirtækið framleiðir búnaðinn sem notaður er í ljósaverkið og setti súluna upp fyrir fjórum árum. „Þeir eru bara hér til að taka stöðuna á súlunni og eru að vinna að nýrri viðhaldsáætlun," segir hann. Svanhildur Konráðsdóttir, sviðstjóri hjá menningar- og ferðamálasviði borgarinnar, segir að það sé allt í lagi með súluna - hún sé ekki biluð eða neitt svoleðis. Eftirlitið sé eðlilegur hluti af rekstri súlunnar. Hafþór segir að mennirnir hafi komið í gærkvöldi og fari á sunnudagsmorgun en hann skipulagði ferð þeirra hér á landi. Hann segir að Reykjavíkurborg taki þátt í kostnaðinum að hluta til. „Við borgum kostnaðinn hér á landi, hótel og ferðirnar út í eyjuna," segir hann en svo fá mennirnir einnig dagpeninga frá borginni. Þeir borga þó sjálfir flugferðina til og frá landinu, segir hann. Kostnaður Reykjavíkurborgar vegna dvalar þeirra félaga þessa tvo daga er heldur í lægri kantinum. „Það er eitthvað um þrjátíu þúsund krónur á mann með gistingunni," segir Hafþór og bendir á að fengist hafi gott verð fyrir hótelið. Sama hafi verið upp á teningnum þegar mennirnir komu fyrir tveimur árum.
Mest lesið Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Innlent Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður Innlent Vara við snörpum hviðum Veður Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Erlent Fleiri fréttir Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Sjá meira