Skólinn liðist í sundur við sameiningu 14. mars 2011 10:00 Hvassaleitisskóli Foreldrar eru ósáttir við sameiningarhugmyndir borgaryfirvalda og telja að þær geti grafið undan starfsemi skólans. Fréttablaðið/Daníel
Foreldrar barna í Hvassaleitisskóla hafna alfarið fyrirhugaðri sameiningu skólans og Álftamýrarskóla og saka borgaryfirvöld um vanvirðingu í garð barna, foreldra og starfsfólks skólans. Í umdeildri skýrslu starfshóps borgarinnar um sameiningar skóla er lagt til að skólarnir verði sameinaðir, bekkir á unglingastigi í Hvassaleitisskóla verði aflagðir og nemendur fari þess í stað í Álftamýrarskóla eða Réttarholtsskóla. Rúmlega 200 börn eru nú í Hvassaleitisskóla. Einar Ólafsson, varaformaður foreldrafélags Hvassaleitisskóla, segir í samtali við Fréttablaðið að þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir hafi þau engar upplýsingar fengið um sameininguna. „Við höfnum þessum tillögum, enda er ekki hægt að samþykkja neitt ef upplýsingar liggja ekki fyrir.“ Einar segir að margt skjóti skökku við í framsetningu skýrslunnar. Ein helstu rökin á bak við þessa sameiningu er fækkun barna í hverfinu og fyrirsjáanleg fækkun barna á skólaaldri næstu ár. Einar segir að horfa ætti til lengri tíma en gert er í skýrslunni. „Við hefðum viljað sjá nemendaspá fyrir næstu átta til tíu ár að lágmarki. Það er verið að skipuleggja til langs tíma og þá er rétt að skoða nemendafjöldann til lengri tíma líka.“ Einar segir foreldra ekki andsnúna hagræðingu en þeir hafi áhyggjur af því að með færslu unglingabekkjanna verði grafið undan skólanum. „Þá hljóta foreldrar að velta því fyrir sér hvort ekki sé best að færa öll börnin strax yfir í Álftamýrarskóla. Þetta er eins og að kasta sprengju þarna inni því að skólinn mun springa og liðast í sundur frá og með næsta hausti ef þetta gengur eftir.“ Eva Einarsdóttir, borgarfulltrúi Besta flokksins og fulltrúi í starfshópnum, segir í samtali við Fréttablaðið, að spár um nemendafjölda hafi kallað á að skólastarfið í Hvassaleitisskóla væri skoðað. „Vissulega getur þetta haft áhrif þegar fólk flytur í hverfið og er að ákveða skóla fyrir börnin sín. En þar sem þetta er mjög viðkvæmt mál mun þetta ekki koma til framkvæmda fyrr en á næsta ári.“ Í vannýttu húsnæði skólans ráðgera borgaryfirvöld að koma fyrir þjónustu- eða menningarstarfsemi fyrir hverfið, til að mynda bókasafni, en Einar segir foreldra ekki hrifna af þeirri hugmynd. „Frekar væri hægt að hugsa sér að sjá þar eitthvað skólatengt, líkt og tónlistarskóla, myndlistarskóla eða leiklistarskóla.“ Sameiningartillögurnar eru nú í umsagnaferli sem mun standa til 25. mars. thorgils@frettabladid.is
Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Kourani farinn úr landi Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Fleiri fréttir Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Sjá meira