Notaður reiðbúnaður stöðvaður í tollinum 14. mars 2011 08:00 Enn sendir fólk notaðan reiðbúnað til landsins þrátt fyrir að hér hafi geisað hestapest sem valdið hefur miklu tjóni. Mynd/úr safni.
Matvælastofnun hefur nú til vinnslu mál sem kom upp eftir að tollgæslan stöðvaði sendingu erlendis frá með notuðum reiðtygjum og fatnaði, samkvæmt upplýsingum sem Fréttablaðið fékk hjá embætti Tollstjóra í gær. Sendingin sem stöðvuð var um miðjan janúar kom frá Austurríki, samkvæmt upplýsingum embættisins, og var stíluð á einstakling hér. Hún hafði að geyma notuð beisli, taumgjarðir, ábreiður og reiðfatnað. Mál af svipuðum toga kom upp í nóvember síðastliðnum þegar notuð reiðtygi og óhreinn reiðfatnaður fundust við tollskoðun á bíl sem var að koma erlendis frá með gámaflutningaskipi. Bíllinn var einnig mjög óhreinn og var greinilega að koma beint úr umhverfi hesta. Matvælastofnun og tollgæslan hafa ítrekað varað við innflutningi á notuðum reiðtygjum og -fatnaði vegna smithættu. Í skýrslu sem Mast og Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum hafa gefið út um hóstapestina sem herjað hefur á íslenska hrossastofninn segir meðal annars að ekki sé ljóst hvenær eða hvernig smitefnið barst til landsins en spjótin beinist meðal annars að ólöglegum innflutningi notaðra reiðtygja. „Það virðist hafa færst í vöxt að hestamenn taki ýmsan búnað með sér milli landa, einkum mél, en öllum ætti nú að vera ljós sú mikla áhætta sem slíkum innflutningi fylgir," segir í skýrslunni og bætt er við að hestaveikin hafi valdið mikilli röskun á hestatengdri starfsemi og þar með miklu fjárhagslegu tjóni. -jss
Mest lesið Stigmögnun í nágrannaerjum: „Hann vildi keyra á mig“ Innlent „Enda ekki í nokkru einasta ástandi til að vera meðal fólks“ Innlent Gengst nú við skilaboðunum umdeildu Innlent „Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Erlent Hægt að nálgast vottorð um að makinn hafi rangt fyrir sér Innlent „Það átti að taka mig í karphúsið“ Innlent Árásarmaðurinn svartklæddi reyndist vera ættingi Innlent Tugþúsundir mótmæltu ICE Erlent Selenskí undir miklum þrýstingi Innlent Ungur drengur látinn eftir hákarlaárás Erlent Fleiri fréttir Þrjátíu prósent Samfylkingarfélaga greitt atkvæði það sem af er Algengast að börn beiti foreldra sína ofbeldi og prófkjör Samfylkingarinnar „Enda ekki í nokkru einasta ástandi til að vera meðal fólks“ Árásarmaðurinn svartklæddi reyndist vera ættingi Stigmögnun í nágrannaerjum: „Hann vildi keyra á mig“ Gengst nú við skilaboðunum umdeildu Hægt að nálgast vottorð um að makinn hafi rangt fyrir sér Um 900 manns nú með lögheimili í Grindavík „Það átti að taka mig í karphúsið“ Selenskí undir miklum þrýstingi Tímamótaviðræður hafnar og ögurstund hjá Samfylkingunni Eldur í sendibíl á Miklubraut Arnar Grétarsson í stjórnmálin Gjörbreytt Langahlíð fyrir milljarð Segist ekki muna eftir að hafa sent skilaboðin „Einhver SA prins mættur til að láta sem allt sé bara kózý“ Endurtekin og alvarleg mál valda áhyggjum Hiti færist í leikinn: „Frægur karl með enga reynslu“ Samfylkingarmönnum í Reykjavík fjölgað um 72 prósent Heimilisofbeldismálin alvarlegri en áður og fundað um Úkraínu í Abu Dhabi Svona var Pallborðið með Heiðu Björgu og Pétri Játaði meira og meira eftir því sem á leið Fann innbrotsþjófinn sofandi á heimilinu Nú geta íbúar skráð sjálfir hvað megi betur fara í borginni „Þetta er svolítið óvenjulegt, ég er ekki á þingi“ Landsleikir á vinnutíma fela í sér tækifæri Pétur vill leiða Viðreisn í Kópavogi Kom ekki á teppið Landsvirkjun hyggst bjóða út alla verkþætti Hvammsvirkjunar í ár Lilja sækist eftir því að leiða Framsókn Sjá meira