Innlent

478 slepptu því að gefa stefnuljós: Lögregla herðir eftirlit

Nú í febrúarmánuði hyggst lögregla höfuðborgarsvæðisins leggja sérstaka áherslu á eftirlit með notkun stefnuljósa.
Nú í febrúarmánuði hyggst lögregla höfuðborgarsvæðisins leggja sérstaka áherslu á eftirlit með notkun stefnuljósa. Mynd: GVA
Fyrir skömmu gerði Umferðarstofa könnun á notkun stefnuljósa í tveimur hringtorgum á höfuðborgarsvæðinu og kom í ljós að mikið vantar á að þetta mikilvæga öryggis- og upplýsingatæki væri notað með fullnægjandi hætti.

Samtals var fylgst með 878 bílum. Af þeim gáfu 400 ökumenn stefnuljós (45,6%) á sama tíma og 478 bílar gáfu ekki stefnuljós (54,4%).

Það er athyglisvert að í viðhorfskönnun sem Capacent Gallup gerði fyrir Umferðarstofu í nóvember kom í ljós að 66,5% létu skort á notkun stefnuljósa í umferðinni fara í taugarnar á sér. Það er því ljóst að meðal ökumanna sjálfra er sterk krafa um að flæði umferðar sem og tillitsemi sé bætti með því að stefnuljós séu notuð. Af þessum athugunum má þó ljóst vera að margir þeirra sem láta skort á notkun stefnuljósa fara í taugarnar á sér gerast sjálfir sekir um að nota þau ekki.

Nú í febrúarmánuði hyggst lögregla höfuðborgarsvæðisins leggja sérstaka áherslu á eftirlit með notkun stefnuljósa.

Á morgun milli klukkan 13:00 og 15:00 mun hún fylgjast sérstaklega með stefnuljósanotkun ökumanna sem um hringtorgið við Ánanaust, Mýrargötu, Fiskislóð og Grandagarð fara.

Á miðvikudag, á sama tíma, mun lögregla svo fylgjast með stefnuljósanotkun ökumanna á hringtorginu við Vesturlandsveg og Hafravatnsveg.

Markmið þessa er að vekja athygli á stefnuljósanotkun og hvetja ökumenn til að sýna öðrum vegfarendum þá tillitssemi í umferð sem þeim ber. Ökumenn sem ekki nota stefnuljós mega búast við sektum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×