60 þúsund veiktust af svínaflensu 19. febrúar 2011 06:00 Bólusett Enn er fólk hvatt til að láta bólusetja sig gegn svínainflúensu. fréttablaðið/vilhelm
Talið er að um 60 þúsund manns hafi veikst af svínainflúensu hérlendis. Um 170 voru lagðir inn á sjúkrahús vegna hennar haustið 2009. Af þeim þurfti að leggja 22 inn á gjörgæsludeild. Lágu margir í öndunarvélum vikum saman. Þetta kemur fram í svari velferðarráðherra við fyrirspurn Vigdísar Hauksdóttur Framsóknarflokki. Í svarinu segir að talið sé að bólusetninging haustið 2009 hafi komið í veg fyrir um 15-20 þúsund tilfelli af svínainflúensu, 60-80 sjúkrahúsinnlagnir og 6-8 tilfelli á gjörgæslu. Önnur bylgja flensunnar sé að sækja í sig veðrið og þegar hafi kona um þrítugt, sem ekki var bólusett, verið lögð inn á gjörgæsludeild til meðferðar í öndunarvél. Vigdís spurði meðal annars um kaup á bólusetningarefni. Voru 300 þúsund skammtar keyptir og nam kostnaðurinn 381 milljón króna. Um 150 þúsund manns hafa verið bólusettir og því eru um 150 þúsund skammtar til á lager. Hluti bóluefnisins rennur út í lok október á þessu ári en annar hluti þess ári síðar. Enn er fólk hvatt til að láta bólusetja sig. Fram kemur að 66 prósent fólks 68 ára og eldri hafi verið bólusett, 44 prósent 19-68 ára og 48 prósent 0-18 ára. Vigdís spurði jafnframt hvort dæmi væru um alvarleg eftirköst eftir bólusetningu. Segir í svarinu að vitað sé um tvö tilfelli sem flokkast sem alvarleg. Tengdust þau bráðaofnæmi fyrir bóluefninu en báðum einstaklingum farnaðist vel.- bþs
Mest lesið Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Erlent Munaði litlu að nýliði skákaði borgarstjóra Innlent Gríðarleg vonbrigði að reyndri konu sé ekki treyst Innlent „Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Erlent Tvöfalt fleiri aldraðir leituðu hjálpar vegna ofbeldis Innlent Stóra verkefnið að vinna aftur traust borgarbúa Innlent Annar maður skotinn til bana af ICE Erlent Samfylkingin valdi sér borgarstjóraefni Innlent Valið á milli gömlu og nýju Samfylkingarinnar Innlent Stigmögnun í nágrannaerjum: „Hann vildi keyra á mig“ Innlent Fleiri fréttir Munaði litlu að nýliði skákaði borgarstjóra Stóra verkefnið að vinna aftur traust borgarbúa Gríðarleg vonbrigði að reyndri konu sé ekki treyst Pétur Marteinsson kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík Samfylkingin valdi sér borgarstjóraefni Valið á milli gömlu og nýju Samfylkingarinnar Gullhúðað afnám jafnlaunavottunar Tvöfalt fleiri aldraðir leituðu hjálpar vegna ofbeldis Vandræðagangur með skilaboð á versta tíma fyrir Heiðu Leita að öðrum til að taka við Ísafjarðarfluginu Allir hafi áhuga á Íslandi Biður Dóru Björt afsökunar eftir deilur um vetrarþjónustu Þrjátíu prósent Samfylkingarfélaga greitt atkvæði það sem af er Algengast að börn beiti foreldra sína ofbeldi og prófkjör Samfylkingarinnar „Enda ekki í nokkru einasta ástandi til að vera meðal fólks“ Árásarmaðurinn svartklæddi reyndist vera ættingi Stigmögnun í nágrannaerjum: „Hann vildi keyra á mig“ Gengst nú við skilaboðunum umdeildu Hægt að nálgast vottorð um að makinn hafi rangt fyrir sér Um 900 manns nú með lögheimili í Grindavík „Það átti að taka mig í karphúsið“ Selenskí undir miklum þrýstingi Tímamótaviðræður hafnar og ögurstund hjá Samfylkingunni Eldur í sendibíl á Miklubraut Arnar Grétarsson í stjórnmálin Gjörbreytt Langahlíð fyrir milljarð Segist ekki muna eftir að hafa sent skilaboðin „Einhver SA prins mættur til að láta sem allt sé bara kózý“ Endurtekin og alvarleg mál valda áhyggjum Hiti færist í leikinn: „Frægur karl með enga reynslu“ Sjá meira