Hætt við úttekt eftir mótmæli starfsfólks 22. júlí 2011 10:00 Bæjarráðið var óánægt með starfslokasamninga hjá Félagsþjónustunni og samþykkti úttekt á starfsumhverfinu þar. Fulltrúar starfmanna kváðust á móti því og úttektin var slegin af. Fréttablaðið/stefán
Andstaða starfsmanna varð til þess að hætt hefur verið við að gera úttekt á Félagsþjónustu Kópavogs. Bæjarráð samþykkti í febrúar á þessu ári að fá Líf og sál ehf. til að gera „greiningu á starfsumhverfi Félagsþjónustu Kópavogsbæjar," eins og segir í fundargerð ráðsins. Undir sama lið á fundi bæjarráðs var lagður fram og samþykktur starfslokasamningur við Hildi Jakobínu Gísladóttur, yfirmann fjölskyldudeildar. Áður hafði Hildur verið fjarverandi frá Félagsþjónustunni í nokkra hríð á launum. Ástæðan var samskiptaörðugleikar Hildar og Aðalsteins Sigfússonar félagsmálastjóra. Fleiri starfsmenn Félagsþjónustunnar höfðu á misserunum þar á undan hætt vegna samskiptaörðugleika við félagsmálastjórann. Gerður var starfslokasamningur við einn þeirra. „Okkur þótti ástæða til að skoða þetta því bæjarráðið er náttúrulega ekki sérstaklega hresst með það að það séu gerðir starfslokasamningar við starfsfólk. Við vorum ekki sátt við það," útskýrir Guðríður Arnardóttir, formaður bæjarráðs. Guðríður segir ætlunina hafa verið þá að Líf og sál tæki út samskipti og starfsanda hjá Félagsþjónustunni. „Þegar Líf og sál heyrði að það væru deildar meiningar meðal starfsmanna um að þessi úttekt færi fram þá báðust þeir undan verkinu," segir Guðríður sem þá átti fund með fulltrúum starfsmanna Félagsþjónustunnar. „Starfsfólkið upplifði þetta sem vantraust. Líf og sál sagði okkur að vegna þess að það væri ekki sátt um úttektina meðal starfsmanna þá sæju þeir ekki tilganginn með henni," segir Guðríður sem kveður úttekt af þessu tagi þar með úr sögunni. Að sögn Guðríðar skilur hún það sjónarmið starfsmannanna að það hafi verið sérkennilegt að bæjarráðið tæki einhliða ákvörðun um úttektina og kæmi þannig með virkum hætti inn í starfsmannamálin. „Auðvitað hefðum við átt að setjast niður með starfsfólki á fyrri stigum málsins og fara yfir málin. Ég held að það sé alveg rétt að það sé ágætur starfsandi á Félagsþjónustunni og hef engar áhyggjur af því." gar@frettabladid.is
Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Innlent Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Erlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Erlent Halla boðar til ríkisráðsfundar Innlent Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Innlent Fleiri fréttir Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Sjá meira