Samfylkingarfólk forðast ekki hótel og veitingahús 31. maí 2011 23:00 Flokksstjórnarfundur Samfylkingarinnar um síðustu helgu fór fram í Fjölbrautarskólanum í Garðabæ. Hér sést formaður flokksins, Jóhanna Sigurðardóttir, í ræðustól. Mynd/Sigurjón
Samfylkingin er ekki á nokkurn hátt að forðast að nýta þjónustu aðila sem tilheyra Samtökum ferðaþjónustunnar. Þess í stað hefur flokkurinn átt töluverð viðskipti við fjölmarga aðila í hótel- og veitingahúsrekstri. Þetta kemur fram á vef Samfylkingarinnar vegna tilkynningar sem Samtök ferðaþjónustunnar sendu frá sér í gær þar sem samtökin sögðu ríkisstjórnarflokkanna funda í sölum opinberra stofnana þar sem ekki sé greiddur virðisaukaskattur. Tvö dæmi er tiltekin af því að ríkisstjórnarflokkarnir hafi haldið fundi í skólum. Vinstri græn hafi fundað tvívegis í Hagaskóla í fyrra. Um síðustu helgi hafi Samfylkingin síðan haldið flokksþing í Fjölbrautaskóla Garðabæjar. „Það ríkir gríðarleg samkeppni á þessum markaði og fyrir löghlýðin fyrirtæki er erfitt að eiga í samkeppni við opinberar stofnanir sem þurfa ekki að standa skil á virðisaukaskatti," segja Samtök ferðaþjónustunnar. Samfylkingin segir á vef sínum að gagnrýni Samtaka ferðaþjónustunnar eigi ekki við nokkur rök að styðjast hvað Samfylkinguna varðar. „Þegar fundir eru haldnir á vegum flokksins er yfirleitt fundað í félagsaðstöðu Samfylkingarfélaga en ef slíkt húsnæði er ekki til staðar þá er leitað til aðila í hótel- og veitingarekstri með fundaðstöðu eins og hægt er. Fyrst og fremst leitar Samfylkingin eftir góðu húsnæði sem hentar eðli hvers fundar fyrir sig." Þá tilgreinir Samfylkingin hvar flokkstjórnarfundir hafa verið haldnir að undanförnu sem og yfir 30 fundir í tengslum við skýrslu umbótanefndar flokksins. „Af ofangreindu er augljóst að Samfylking er ekki á nokkurn hátt að forðast að nýta þjónustu aðila sem tilheyra Samtökum ferðaþjónustunnar heldur hefur flokkurinn einmitt átt mjög góð samskipti og töluverð viðskipti við fjölmarga aðila í hótel- og veitingahúsrekstri á undanförnum mánuðum og árum.“
Tengdar fréttir Telja stjórnmálaflokka forðast þjónustu skattlagðra fyrirtækja „Það er ömurleg staða að stjórnmálaflokkarnir skuli vera búnir að skattleggja fyrirtækin svo harkalega að þeir verði sjálfir að forðast þjónustu þeirra,“ segir í tilkynningu frá Samtökum ferðaþjónustunnar. 31. maí 2011 07:00 Mest lesið Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Baldur til Eyja Innlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur Viðskipti innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent „Það er mikið verið að suða“ Innlent Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Innlent Fleiri fréttir Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Sjá meira
Telja stjórnmálaflokka forðast þjónustu skattlagðra fyrirtækja „Það er ömurleg staða að stjórnmálaflokkarnir skuli vera búnir að skattleggja fyrirtækin svo harkalega að þeir verði sjálfir að forðast þjónustu þeirra,“ segir í tilkynningu frá Samtökum ferðaþjónustunnar. 31. maí 2011 07:00