Hot Springs hótel með áfengi á Heilsuhælinu 9. febrúar 2011 07:00 Ólafur Sigurðsson Framkvæmdastjóri NLFÍ hótels telur almenna ferðamenn ekki munu sætta sig við að fá aðeins kalt vatn að drekka. Fréttablaðið/Stefán „
Það er ekki nema von að menn séu hissa á því að verið sé að sækja um vínveitingaleyfi fyrir heilsustofnun," segir Ólafur Sigurðsson, framkvæmdastjóri NLFÍ hótel sem hefur fengið leyfi til að selja vín á heilsuhælinu í Hveragerði. Náttúrulækningafélagið hefur rekið heilsustofnunina í Hveragerði í 55 ár. Ólafur segir að vegna tíu prósenta niðurskurðar á fjárframlögum frá ríkinu þurfi að grípa til óhefðbundinna ráða. Því verði starfsfólkið allt sent samtímis í sex vikna frí og beðið að taka sér hálfs mánaðar launalaust leyfi að auki. Á meðan, frá 20. júní til 20. ágúst, verði rekið sumarhótel fyrir almenna ferðamenn í húsnæði stofnunarinnar. Það verður gert undir heitinu Hot Springs Hotel. „Þá kom upp ein stór spurning sem hefur nú staðið í mörgum: Eigum við að fara að bjóða upp á öðruvísi mat og jafnvel vín? Þess vegna sóttum við um þetta leyfi til öryggis en við erum ekki alveg búnir að taka lokaákvörðun um það hvort við verðum með léttvín með mat. Það eru náttúrlega ferðamenn sem myndu nýta sér þetta. Ég er hræddur um að þeir myndu ekki sætta sig við kalda vatnið," segir Ólafur. Grænmetisfæði hefur verið aðalsmerki Heilsustofnunarinnar. Sveigt verður inn á aðrar brautir á sumarhótelinu. „Við ætlum að leggja miklu meiri áherslu á fiskinn sem við Íslendingar erum svo stoltir af, heimatilbúinn mat og auðvitað mikið af okkar eigin grænmeti. Svo verðum við kannski með einn kjötrétt - svona til þess að mæta blóðþörfinni," segir framkvæmdastjórinn. Að sögn Ólafs sparast mest á því að ekki þurfi að ráða fagfólk í afleysingar auk þess sem mun færra starfsfólk þurfi til að sinna venjulegum hótelrekstri miðað við heilsustofnunina. Í boði eru 180 rúm í 110 herbergjum á Hot Springs Hotel auk nokkurra íbúða. Ólafur kveðst hafa kannað stöðuna hjá öðrum seljendum gistiþjónustu á svæðinu og komist að því að sumarhótelið muni ekki trufla starfsemi þeirra. „Sem betur fer erum við ekki að keppa við neinn á Suðurlandi því það er allt orðið fullt hjá þeim í dag. Við ætlum ekki að vera alltof ódýrir svo við sé ekki ódrengilegir í samkeppni við aðra," segir framkvæmdastjóri NLFÍ hótel. gar@frettabladid.is
Mest lesið Faðirinn í hungurverkfalli í lokaðri móttökustöð og móðirin ein með börnin Innlent „Fyrst og fremst er verið að hafna oddvitanum“ Innlent Munaði litlu að nýliði skákaði borgarstjóra Innlent Icelandair aflýsir flugferðum Innlent Maðurinn er fundinn Innlent Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Erlent Skotinn til bana: Myndefnið þvert á orð ráðherrans Erlent Gripnir á 165 á áttatíu götu og á 157 á sextíu götu Innlent Fyrrverandi yngsti þingmaður sögunnar skiptir um flokk og fer fram Innlent Kerfið hafi brugðist Innlent Fleiri fréttir Metfjöldi vill stíga á svið með Íslenska dansflokknum Faðirinn í hungurverkfalli í lokaðri móttökustöð og móðirin ein með börnin Aðeins tíu prósent sem leita til Stígamóta kæra ofbeldið Spyr hvort að Rúv finnist hún „hundleiðinleg t***a“ „Örstutt þunglyndi yfir niðurstöðunum“ Maðurinn er fundinn Kerfið hafi brugðist Sjálfstæðismenn mynda bandalag á Akureyri Sundabraut og Fljótagöng verkefni innviðafélagsins Háværar flugvélar sem vöktu athygli í gær voru á æfingu „Fyrst og fremst er verið að hafna oddvitanum“ Fyrrverandi yngsti þingmaður sögunnar skiptir um flokk og fer fram Heiðu hafnað og fjöldi niðurfellinga heimilisofbeldismála hjá lögreglu Segir Heiðu hafa átt betra skilið Icelandair aflýsir flugferðum Fyrrverandi ráðherrar ræða alþjóðamálin Gripnir á 165 á áttatíu götu og á 157 á sextíu götu Tvö pör handtekin grunuð um líkamsárásir Munaði litlu að nýliði skákaði borgarstjóra Stóra verkefnið að vinna aftur traust borgarbúa Gríðarleg vonbrigði að reyndri konu sé ekki treyst Pétur Marteinsson kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík Samfylkingin valdi sér borgarstjóraefni Valið á milli gömlu og nýju Samfylkingarinnar Gullhúðað afnám jafnlaunavottunar Tvöfalt fleiri aldraðir leituðu hjálpar vegna ofbeldis Vandræðagangur með skilaboð á versta tíma fyrir Heiðu Leita að öðrum til að taka við Ísafjarðarfluginu Allir hafi áhuga á Íslandi Biður Dóru Björt afsökunar eftir deilur um vetrarþjónustu Sjá meira