Fréttaskýring: Enginn ráðherra sagt af sér eftir að hafa tapað dómsmáli 21. febrúar 2011 19:00 Árni Magnússon
Fréttaskýring: Hafa ráðherrar sagt af sér eftir að dómar hafa gengið gegn ákvörðunum þeirra? Spjót hafa staðið á Svandísi Svavarsdóttur umhverfisráðherra eftir hæstaréttardóm sem gekk henni í mót á dögunum. Þar var ákvörðun hennar um að samþykkja ekki þann hluta aðalskipulags Flóahrepps er varðar væntanlega Urriðafossvirkjun, ógilt. Ýmsir hafa kallað eftir afsögn Svandísar, en hún hefur sjálf neitað því að um sé að ræða áfellisdóm yfir henni og hyggst sitja sem fastast á stóli. Sömuleiðis hefur forsætisráðherra lýst yfir stuðningi við Svandísi og telur málið ekki kalla á afsögn. Nokkur dæmi eru um að dómar hafi gengið gegn ákvörðun ráðherra án þess að hafa orðið til þess að viðkomandi hafi þurft að segja af sér embætti. Til dæmis féll dómur í Hæstarétti árið 2005, gegn embættisfærslum Árna Magnússonar, þáverandi félagsmálaráðherra, eftir að hann vék Valgerði Bjarnadóttur úr embætti framkvæmdarstýru Jafnréttisstofu.Dómurinn taldi ráðherra hafa vanvirt meðalhófsreglu auk þess sem hann hafi með framferði sínu miðað að því að „komast hjá [því] að fylgja lögboðinni málsmeðferð". Ríkið var dæmt til greiðslu skaðabóta að upphæð sex milljónir króna, en Árni sat í ráðherrastóli fram á næsta ár þegar hann hætti í stjórnmálum af eigin hvötum. Lögfræðingurinn Arnar Þór Stefánsson hefur kynnt sér þess konar mál og ritaði meðal annars grein í Úlfljót um ógildingu stjórnvaldsákvarðana. Hann segir enga hefð fyrir afsögn ráðherra í þessum efnum. Spurningin um ábyrgð ráðherra snýst fyrst og fremst um að greina á milli pólitískrar ábyrgðar og lagalegrar. Engu að síður er það líka matsatriði hvenær ráðherra hefur í raun farið svo á skjön við lög að hann beri skýra lagalega ábyrgð. Trausti Fannar Valsson, lektor í stjórnsýslurétti við lagadeild Háskóla Íslands, segir í samtali við Fréttablaðið að ekki sé óeðlilegt að ráðherrar reki mál fyrir dómstólum til að leysa úr vafa á lagatúlkun. „Stjórnvöldum er falið að framfylgja lögum, en í sumum málum getur komið upp vafi um túlkun.Að láta reyna á slíkt fyrir dómstólum er á engan hátt ómálefnalegt af hendi stjórnvalda. Í flestum tilfellum er hins vegar mjög fjarlægt að ráðherra beri lagalega ábyrgð á slíku, nema ef talið sé að ráðherra hafi ef til vill misbeitt valdi sínu með því að knýja á um einhverja meðferð máls fyrir dómstólum." thorgils@frettabladid.isSvandís svavarsdóttir
Mest lesið Trump hrósaði forsetanum fyrir færni í eigin móðurmáli Erlent Telur sig hafa orðið vitni að aðdraganda drápsins Innlent Tveir menn fjárkúguðu ungan dreng Innlent Mátti ekki lána sér pening úr eigin fyrirtæki Innlent Kvarta yfir því að reykur frá Kanada sé að skemma sumarið Erlent Metnaðarfullar malbikunarauglýsingar hluti af væb-kúltúrnum Innlent Hlýnar um helgina Veður Aðilar „einfaldlega ekki tilbúnir að teygja sig nógu langt“ Innlent Bandaríkjamenn refsa sendifulltrúa SÞ í málefnum Palestínumanna Erlent Pilturinn er fundinn Innlent Fleiri fréttir Jökulhlaup úr Mýrdalsjökli í Leirá Syðri og Skálm enn í gangi Telur sig hafa orðið vitni að aðdraganda drápsins Borgarbúar frekar hlynntir kílómetragjaldi en landsbyggðin Aðilar „einfaldlega ekki tilbúnir að teygja sig nógu langt“ Tveir menn fjárkúguðu ungan dreng Fundu jöklafýlu í Þórsmörk vegna hlaupsins Metnaðarfullar malbikunarauglýsingar hluti af væb-kúltúrnum Mátti ekki lána sér pening úr eigin fyrirtæki Pilturinn er fundinn „Skýr vísbending um að gera þurfi betur í málefnum erlendra barna“ Sjúklingar óttist dómhörku vegna þyngdarstjórnunarlyfja „Það er engin ástæða til að gefast upp“ Reiðarslag fyrir Landsvirkjun, kjarnorkukafbátur og heimsfræg íslensk kisa „Í næstu umferð fara hlutirnir í gegn“ Tilkynnt um buxnalausan mann og stolinn pizzaofn „Það er enginn svartur listi hjá okkur“ Davíð hafi lagt Golíat Hlaup er hafið úr Mýrdalsjökli Ökumaður bifhjólsins látinn Dettifoss vélarvana úti á ballarhafi Flugvél snúið við vegna bilunar „Enn ein viðurkenning að það má brjóta á fötluðu fólki“ Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Óska eftir vitnum: Missti stjórn og hafnaði á vegriði Bíða niðurstaðna um magakveisuna á Laugarvatni Dómurinn vonbrigði en virkjunin ekki út úr myndinni Kona á fimmtugsaldri í haldi vegna hnífstunguárásar „Nú verður að hafa hraðar hendur“ Hvammsvirkjun í uppnámi og ókyrrð hjá Play Hæstiréttur hafnar Hvammsvirkjun Sjá meira