Orkuveitan framkallar jarðskjálfta í Henglinum 21. febrúar 2011 11:09
Tvær manngerðar jarðskjálftahrinur urðu á Hengilssvæðinu í nótt og í morgun, sem rekja má til umsvifa Orkuveitu Reykjavíkur á svæðinu. Fyrri hrinan varð frá klukkan tvö til hálf fjögur í nótt og sú síðari og snarpari frá klukkan hálf sex til sex í morgun. Margir skjálftar mældust í báðum hrinunum, en allir þó vægir og fundust þeir hvergi í byggð, en Hengilssvæðið er norðan við Hellisheiði. Að sögn Sigþrúðar Ármannsdóttur jarðfræðings á Veðurstofunni kom í ljós í morgun að þetta stafaði af því að starfsmenn Orkuveitunnar voru að dæla niður köldu vatni á Hengilssvæðinu, þar sem mikill jarðhiti er undir, en við það framkölluðust jarðskjálftar. Dælingin tengist rekstri Hellisheiðarvirkjunar. Þetta teljast því manngerðir skjálftar, en eftir því sem jarðvísindamenn Veðurstofunnar best vita, hefur slíkt verið óþekkt hér á landi nema í tengslum við sprengingar af manna völdum, einkum við mannvirkjagerð, eins og gerðist til dæmis við gerð Kárahnjúkavirkjunar.
Mest lesið Skvísur geti virkað sem hálfgerðir þroskaþjófar Innlent Ráðgjafinn ráðinn í tímabundið starf eftir dýra skreppitúra Innlent Heitavatnslaust á Suðurnesjum og rafmagnslaust víða um land Innlent Hljóp út í örvæntingu „með lífið í poka“ Erlent Skreppiferðir í Jysk meðal þess sem ráðgjafi rukkaði fyrir Innlent Réttað yfir tíu sem segja frönsku forsetafrúna vera karlmann Erlent Misvægi atkvæða bitnar mest á Kraganum Innlent „Ég tel ekki tilefni til að íhuga stöðu mína“ Innlent Mildari spá í kortunum Veður Erfitt að segja til um viðbrögð við nýjum faraldri miðað við Covid-viðbrögð Innlent Fleiri fréttir Skvísur geti virkað sem hálfgerðir þroskaþjófar Ráðgjafinn ráðinn í tímabundið starf eftir dýra skreppitúra Misvægi atkvæða bitnar mest á Kraganum Heitavatnslaust á Suðurnesjum og rafmagnslaust víða um land Skreppiferðir í Jysk meðal þess sem ráðgjafi rukkaði fyrir „Ég tel ekki tilefni til að íhuga stöðu mína“ Áhyggjur af lánaframboði og ógnarlangar biðraðir Vara við ferðum á Fagradalsfjall þar sem aðstæður geti orðið hættulegar Kristmundur verður lögreglustjóri á Austurlandi „Vonandi klárast þetta á morgun“ Sá látni var á rjúpnaveiðum þegar hann varð fyrir voðaskotinu Kvartanir mannsins um ómannúðlega meðferð áður til skoðunar hjá NEL Ungi ökumaðurinn á Ísafirði úr lífshættu Nefnd SÞ gegn pyndingum skráir erindi hælisleitenda sem vísað var frá Íslandi Ófremdarástandi lýst: Þrír stjórar í leyfi, einelti og hrun í starfsánægju Bíða í allt að þrjá tíma: „Ætli það sé ekki bara helvítis veðurspáin“ Alger óvissa í lánamálum og margra tíma bið eftir dekkjaskiptum Kláfur á Ísafirði fari í opinbera kynningu Hófu ekki rannsókn á heimilisofbeldi fyrir misskilning Erfitt að segja til um viðbrögð við nýjum faraldri miðað við Covid-viðbrögð Allt að þriggja tíma bið í dekkjaskipti Komu innlyksa mæðginum til bjargar í Landmannalaugum Um 140 umsækjendur um alþjóðlega vernd týndir og eftirlýstir Garðheimar ljósið í myrkrinu við meinta gímaldsgötu Útlit fyrir mestu snjókomu í október í manna minnum Brennu–Njáls saga vekur alltaf lukku í Hvolsskóla Bresk freigáta í Akureyrarhöfn Beittur piparúða í fangaklefa, hótað með rafbyssu og sveltur Beittur piparúða, hótað með rafbyssu og sveltur í fangaklefa Sendiferðabíll í ljósum logum á Reykjanesbraut Sjá meira