Jón Bjarnason segir skilyrði ESB víðtæk Þorbjörn Þórðarson skrifar 17. september 2011 16:00 Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Þau skilyrði sem Evrópusambandið setur Íslandi eru víðtækari en skilyrði annarra ríkja í aðildarviðræðum og ekki verður séð að slakað mikið sé á kröfum ESB vegna smæðar landsins eða þess að hér sé bændastéttin fámenn miðað við það sem gerist með milljónaþjóðum. Þetta segir Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Ráðherrann skrifar grein um aðildarviðræðurnar og rýniskýrslu Evrópusambandsins í Morgunblaðið í dag. Hann segir að í skýrslunni sé öllum aðalatriðum rétt og lýsi réttilega aðstæðum í íslenskum landbúnaði. Evrópusambandið viðurkenni þá sérstöðu sem íslenskur landbúnaður búi við, mm.a hvað varðar fábreytni í framleiðslu þar sem hér sé ekki stunduð kornrækt í neinni líkingu við það sem sé í löndum ESB. En í texta framkvæmdastjórnarinnar sé hvergi vikið að neinni tilslökun gagnvart því að Ísland taki að fullu yfir það stjórnkerfi sem gildi um landbúnað í Evrópu. Jón Bjarnason segir að við aðild verði Ísland að tryggja beitingu of framkvæmd á réttarreglum ESB um landbúnað og dreifbýlisþróun. Þetta muni útheimta að ESB-reglum verði beitt um beingreiðslur og tryggt verði að komið verði á skipulagi sameiginlegs markaðar fyrir landbúnaðarafurðir. Þetta muni krefjast verulegrar aðlögunar að gildandi lögum og stjórnarháttum Evrópusambandsins. Ráðherrann segir að ein veigamestu tíðindi skýrslunnar séu að Evrópusambandið kjósi að beita Ísland svonefndum opnunarskilyrðum til að samningaviðræður um landbúnað og dreifbýlisþróun geti hafist. Slíkt sé ekki nýlunda og hafi t.d gerst í tilviki Króatíu. Króatar hafi þegar stofnað svokallaða greiðslustofu, þótt aðild hafi ekki verið samþykkt þar í landi og 518 manns starfi við hina nýju stofnun. Jón segir að opnunarskilyrði sem sett eru Íslandi af hálfu ESB séu á vissan hátt víðtækari en Króatíu því Íslandi sé gert skylt að leggja fram áætlun um hvernig það ætli að yfirtaka almenna landbúnaðarstefnu ESB ef til aðildar kemur. Jón segir að ekki sé að sjá að hér sé slakað á kröfum ESB vegna smæðar landsins eða þess að hér sé bændastéttin fámenn miðað við það sem gerist með milljónaþjóðum. Hann segir að þau skilyrði sem ESB hafi sett komi verulega á óvart í ljósi yfirlýsingar íslensku samninganefndarinnar sem miðaðist við þá ákvörðun Íslands um að íslenskri stjórnsýslu og lögum yrði ekki breytt fyrr en aðildarsamningur hefði verið samþykktur í þjóðaratkvæðagreiðslu. Nú liggi fyrir að slík yfirlýsing sé ekki fullnægjandi að mati framkvæmdastjórnar ESB. Jón Bjarnason segir að það verði sett fyrsta verk að leita svara hjá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins um hversu almenn eða ítarleg áætlun Íslands í landbúnaðarmálum eigi að vera. Ekki verði ráðist í gerð hennar fyrr en það liggi fyrir.
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Fleiri fréttir Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Sjá meira