Uppsagnir hjá Kópavogsbæ - 70 milljónir sparast á ársgrundvelli 26. janúar 2011 14:04 Skipulagsbreytingarnar voru samþykktar á bæjarstjórnarfundi í gær.
Töluverðar skipulagsbreytingar hjá stjórnsýslu Kópavogsbæjar voru samþykktar á bæjarstjórnarfundi í gærkvöld en í nýsamþykktri fjárhagsáætlun bæjarins er gert ráð fyrir því að talsverðum sparnaði verði náð með skipulagsbreytingum og hagræðingu í stofnunum og yfirstjórn bæjarins. Fækkað er um ellefu störf innan stjórnsýslunnar og munu tólf einstaklingar fá uppsagnarbréf þar sem í sumum tilfellum var um hlutastörf að ræða. Á meðal þess sem lagt er niður er starf sviðstjóra menningarsviðs, en Guðrún Pálsdóttir gegndi því starfi áður en hún var ráðin bæjarstjóri. „Breytingarnar eru hluti af samstarfssamningi meirihlutans í bæjarstjórn Kópavogs en þar er kveðið á um einföldun í stjórnsýslu og fækkun nefnda. Breyttri stjórnsýslu er þannig ætlað að auka skilvirkni og stytta boðleiðir en jafnframt tekur hún mið af breyttum áherslum og verkefnum bæjarins í kjölfar efnahagshrunsins. Áhersla er lögð á að breytingarnar komi sem minnst niður á þjónustu við bæjarbúa," segir í tilkynningu frá Kópavogsbæ. Þá segir að eftir breytingarnar verði starfsemi bæjarins skipt í fjögur svið í stað sex. Störfum í stjórnsýslu bæjarins fækkar um ellefu eða um tæplega tíu prósent. Samhliða hafa verið samþykktar breytingar á nefndum bæjarins og fækkar kjörnum fulltrúum í þeim um 30. „Á ársgrundvelli eiga breytingarnar og önnur hagræðing innan stjórnsýslunnar að spara um 70 milljónir í rekstri bæjarins," segir einnig. Stjórnendur bæjarins kynntu starfsmönnum fyrirhugaðar skipulagsbreytingar á starfsmannafundi eftir hádegi í gær og síðdegis lagði bæjarstjóri þær fram til umræðu og afgreiðslu í bæjarstjórn. Miðað er við að þær taki gildi um mánaðamótin.
Mest lesið „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Erlent „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni Erlent Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Innlent Fleiri fréttir Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Sjá meira