Ef um svindl væri að ræða ætti einhver að axla ábyrgð 26. janúar 2011 18:40
Innanríkisráðherra segir stjórnarmeirihlutann staðráðinn í að stjórnlagaþing verði haldið og kjósa þurfi aftur til þess. Hann segir engan hafa gert athugasemdir við frumvarp um framkvæmd kosninganna, heldur hafi menn deilt um hvort yfirleitt ætti að boða til stjórnlagaþings. Ekki liggur fyrir hvernig brugðist verður við niðurstöðu Hæstaréttar varðandi stjórnlagaþingið, en enginn virðist ætla að taka ábyrgð á þeim meinbugum sem voru á kosningunum. Landskjörstjórn kom saman síðdegis í dag til að ræða málin og situr væntanlega enn á fundi. Þá fundaði undirbúningsnefnd þingsins í dag en þar á bæ segjast menn ekki hafa séð um framkvæmd kosninganna. „Forseti á von á því að alsherjarnefnd fari yfir málið með helstu sérfræðingum og þeim sem að þeim stóðu," sagði Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, við upphaf þingfundar í dag. En skipulag og framkvæmd kosninganna var í höndum dómsmálaráðuneytisins. Ögmundur Jónasson, ráðherra segir að reynt verði að leiða það í dagsljósið sem fór úrskeiðis. En á ekki einhver að axla ábrygð? „Jú, og það gerum við, við tökum þátt í umræðum um þessi mál og reynum að leiða það í dagsljósið sem fór úrskeiðis," segir Ögmundur. Málið snúist hins vegar um formgalla sem hefðu getað valdið því að eitthvað færi úrskeiðis í kosningunum, sem ekki hafi gerst. „Ef um hefði verið að ræða svindl eða vafasamir hlutir hefðu átt sér stað, þá væri ástæða til að einhver axlaði ábyrgð, eins og þú orðar það," segir Ögmundur. Mikilvægast sé að allir fari yfir málið og læri af mistökunum. Ríkisstjórnin sé enn staðráðin í að stjórnlagaþing komi saman. Á að kjósa aftur og setja ný lög? „Mér finnst það liggja í kortunum já." Málið var rætt á Alþingi í dag og vildi stjórnarandstaðan að ríkisstjórnin tæki á sig alla ábyrgð á málinu.
Mest lesið Geirdís geti leitað á tjaldsvæði og greitt markaðsverð Innlent Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Innlent „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Innlent „Afleiðingarnar muni vara í einhver ár jafnvel“ Erlent Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Innlent Bandaríkjastjórn lokar á aðgang erlendra ríkisborgara Innlent „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Innlent Áfall fyrir bæjarfélagið Innlent Fleiri hlynntir en andvígir samkvæmt nýrri könnun Innlent Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Innlent Fleiri fréttir Skjálfti í Bárðarbungu að stærð 4,8 Límdu efnin á fætur sína Kominn með nóg af tímasetningu lögreglu Fleiri hlynntir en andvígir samkvæmt nýrri könnun Geirdís geti leitað á tjaldsvæði og greitt markaðsverð Krapvélar í yfirvinnu í góða veðrinu Bandaríkjastjórn lokar á aðgang erlendra ríkisborgara Áfall fyrir bæjarfélagið „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Lokað vegna skorts á starfsleyfi „Við horfum bjartsýn fram á veg“ Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Hægt að skoða þyrlur og sprengjuleitarbúnað Gæslunnar Viðgerð Herjólfs dregst um þrjár vikur: „Vonum að þetta fari nú að verða búið“ Tilgangslaust stríð og æfir hjólabúar „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Hlaðvarparar hrósa sigri: „Logi er greinilega nettur gæi“ Bein útsending: Brautskráning Háskóla Íslands Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Ríkisstjórnin ýmist bensínlaus bátur eða á leikskóla í platheimi Friðarsamkomulag, rauð ljós á Sæbraut og ógeðfelldar lýsingar í dómsal Njósnarar enn í lögsögunni Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt „Af hverju má ég vera í Hveragerði en Grindvíkingar ekki í Grindavík?“ Hittust átta sinnum til að úrskurða um risaeðlubeinin Bólar ekkert á ályktun ungra miðflokksmanna Kviknaði í raftæki Sjá meira