Vegið að lögbundnu hlutverki grunnskóla Óli Kristján Ármannsson skrifar 21. janúar 2011 00:00 Í háteigsskóla Meðal þess sem lagt er til við stjórnendur grunnskóla í Reykjavík í nýrri fjárhagsáætlun menntasviðs borgarinnar er að kennarar hætti að fylgja átta og níu ára börnum í kaffi og matmálstímum. Fréttablaðið/Anton
Frekari niðurskurður í grunnskólum Reykjavíkur gæti orðið til þess að þeir standist hvorki þær kröfur sem gerðar eru í grunnskólalögum né aðalnámsskrá. Þetta segir Guðrún Valdimarsdóttir, formaður Samtaka foreldra grunnskólabarna í Reykjavík (SAMFOK). Þá segir Guðrún að sárlega hafi skort á samráð við fulltrúa foreldra í skólaráðum í þeim niðurskurðarhugmyndum sem menntasvið Reykjavíkur ætli skólastjórnendum að framfylgja. Vísar hún til þess að tiltekið hafi verið sérstaklega á plöggum með niðurskurðartilmælum menntasviðs sem skólastjórar fengu fyrir helgi að foreldrar ættu ekki að sjá tölurnar.Guðrún Valdimarsdóttir „Þetta er þriðja eða fjórða árið í röð sem skorið er niður,“ segir Guðrún og kveður SAMFOK lengi hafa mótmælt áætlunum um niðurskurð í skólunum. „Við erum löngu komin að sársaukamörkum.“ Guðrún segir SAMFOK hafa lagt áherslu á að fremur yrði skorið niður í yfirbyggingu eða öðrum þáttum þar sem hagræðingin bitnaði ekki á börnunum og kennslu þeirra. „Þetta er ekki bara menntastofnun heldur þarf að sinna mörgum félagslegum þáttum líka. Þeim er varla verið að sinna í dag og verður alls ekki hægt ef skera á meira niður.“ Guðrún segir stöðuna nú þannig að fyrir dyrum sé skólastarf í Reykjavík sem samræmist hvorki lögum né aðalnámsskrá. SAMFOK fundar um málið með formönnum foreldrafélaga og fulltrúum foreldra í skólaráðum á Grand Hótel Reykjavík í hádeginu í dag. „Í foreldrum er mikill hiti og reiði og búið að vera lengi. En nú er gjörsamlega allt að springa.“ Oddný Sturludóttir, formaður menntaráðs Reykjavíkur, kannast ekki við að reynt hafi verið að halda upplýsingum um niðurskurð frá fulltrúum foreldra. Hún bendir á að tillögurnar hafi verið kynntar í skólaráðum fyrir helgi og þar eigi þeir fulltrúa. „Það er enginn vilji til að pukrast með neitt,“ segir hún. Oddný segir hafa verið vitað að niðurskurðurinn yrði erfiður, en ekki liggi fyrir fyrr en í lok næsta mánaðar hvernig endanleg niðurstaða verði í hverjum skóla. „Nú stendur sú vinna yfir að fara yfir það með hverjum skólastjóra hvernig standa megi að málum þannig að bitni sem minnst á skólastarfinu sjálfu,“ segir hún og áréttar að grunnskólalög verði ekki brotin í Reykjavík.
Mest lesið „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Erlent „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni Erlent Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Innlent Fleiri fréttir Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Sjá meira