Hækka leikskólagjald námsmanns um 110% 5. janúar 2011 05:30 Mæðgurnar fá þau svör á bæjarskrifstofum Hafnarfjarðar að frá næstu mánaðamótum muni níu og hálfrar stundar leikskólavist fyrir Natalíu kosta 44 þúsund krónur á mánuði í stað 21 þúsund króna eins og nú er. Fréttablaðið/GVA
Þórdís Rúriksdóttir, móðir tveggja ára stúlku í Hraunvallaleikskóla í Hafnarfirði, sér nú fram á að leikskólagjald fyrir dóttur hennar hækki úr 21 þúsund krónum í 44 þúsund á mánuði. Bæjarstjórn Hafnarfjarðar ákvað 17. desember að afnema allan núverandi afslátt í gjaldskrá leikskóla bæjarins frá 1. febrúar. Magnús Baldursson, fræðslustjóri Hafnarfjarðar, segir áherslu lagða á að halda átta stunda vistun fyrir öll börn. Þau pláss séu í raun niðurgreidd um 85 prósent. Hins vegar verði innheimtur raunkostnaður fyrir alla vistun sem boðið sé upp á þar fram yfir. Það er einmitt þess vegna sem breytingin kemur illa við Þórdísi. „Ég er bæði í vinnu og námi. Stundataflan mín er þannig að einn dag í viku þarf dóttir mín níu og hálfan tíma á leikskólanum. Þar af leiðandi verð ég að borga fyrir níu og hálfs tíma vistun allan mánuðinn. Það myndi kosta um 21 þúsund krónur núna en mun, eftir því sem ég kemst næst, kosta um 44 þúsund krónur eftir breytinguna,“ segir Þórdís. Magnús segir breytinguna vissulega munu leiða til verulegra hækkana fyrir suma. Ætlunin sé hins vegar að veita afslátt vegna umframstundanna á leikskólum bæjarins. Hann bendir á að í núverandi kerfi fái einstæðir foreldrar og námsmenn sjálfkrafa afslátt. „Tekjur skiptu engu máli eða hvernig aðstæður voru að öðru leyti og engir aðrir fengu þennan afslátt. Hins vegar vitum við mæta vel, ekki síst núna í hruninu þegar fólk er að missa vinnuna, að það fólk í sambúð hefur sumt ekkert síður þörf fyrir að fá þennan afslátt. Þetta er því ekki eingöngu hugsað sem sparnaðaraðgerð heldur til að gæta jafnræðis,“ segir fræðslustjórinn og upplýsir að breytingunni verði frestað til 1. mars þar sem enn sé ekki ákveðið við hvaða tekjur afslátturinn verði miðaður. Þórdís segir sína stöðu reyndar nokkuð góða þar sem maðurinn hennar sé með ágætis laun. „Ég efast um að við fáum þennan afslátt sem á að veita enda sýnist mér að fólk muni þurfa að vera ansi illa statt til þess. En ég er ekki bara að hugsa um mig heldur aðra líka, til dæmis starfsmenn leikskólanna sem hafa hingað til fengið afslátt en verða nú settir í hóp með öllum öðrum. Ég óttast að þetta verði til þess að hæfir starfsmenn hætti,“ segir Þórdís Rúriksdóttir. gar@frettabladid.is
Mest lesið Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Innlent Mikill reykur frá brennandi bíl í Fossvogi Innlent „Fyrir mér ert þú óheiðarlegt úrhrak“ Innlent Ekki séð dóttur sína í tvö ár og lá í sínu eigin þvagi í alla nótt Innlent Vöruðu við að risaskjálfti væri í vændum Innlent Hnakkrifust á bak við luktar dyr Innlent Upplýsingafulltrúum sagt upp og mannréttindaskrifstofa lögð niður Innlent Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð í Hafnarfirði Innlent Hópuppsögn í borginni: Störfum fækkar um 40 prósent Innlent „Þetta er sama fólkið og skilar ekki innkaupakerrunni“ Innlent Fleiri fréttir Fræddust um daglegt líf blindra og hreyfihamlaðra Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni „Miðað við þessi orð þá hef ég miklar áhyggjur“ Stutt stopp hjá gjaldfrjálsum Strætó Stúlkan er fundin Boðar frekari niðurskurð Borgarstarfsmenn taka pokann sinn og kapphlaup við tímann í Venesúela Kastaðist af hjólinu þegar ekið var á hann „Erfiður dagur í ráðhúsinu í dag“ Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Hópuppsögn í borginni: Störfum fækkar um 40 prósent Vara við netsvikum í nafni „netglæpalögreglunnar“ Fimm vilja stýra HSA Vara við aðskotaefni í tei Vöruðu við að risaskjálfti væri í vændum Upplýsingafulltrúum sagt upp og mannréttindaskrifstofa lögð niður Segir Suðurlandsbraut fara aftur í vinnslu án þess að tefja verkefnið „Virðist vera að það sé kerfislægt brotið á fötluðu fólki“ Stórskrýtið að ekki séu til lagaleg tæki til að stöðva veiðarnar Bjóða út jarðvinnuframkvæmd vegna Stóra-Hrauns Tveir neita sök en hinn þriðji er í Jórdaníu Fleiri andvígir hvalveiðum en fylgjandi Sér ekki eftir framsetningu á sleggjunni Vasaþjófar á ferð í miðborginni Borgin skorar á ríkið að bregðast við námsgagnaskorti Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð í Hafnarfirði „Þetta er sama fólkið og skilar ekki innkaupakerrunni“ Hnakkrifust á bak við luktar dyr Stytting hringvegarins sú mesta á þessari öld Laugin lokuð vegna flögnunar og lokað enn lengur næsta sumar Sjá meira