Sjö mánaða fangelsi fyrir umfangsmikil fjársvik 20. október 2011 12:03
Tuttugu og fjögurra ára karlmaður hefur verið dæmdur í sjö mánaða fangelsi fyrir umfangsmikil fjársvik en hann sveik út vörur og þjónustu fyrir milljónir króna hjá ýmsum fyrirtækjum á höfuðborgarsvæðinu. Hann þarf að greiða á þriðju milljón króna í skaðabætur til fórnarlamba sinna. Maðurinn sveik út vörurnar með því að segjast hafa heimild til að eiga viðskipti í nafni fyrirtækis sem hann tengdist þó á engan hátt. Til að mynda fékk maðurinn afhent bensín-inneignarkort hjá N1 en hann sagðist vera sækja kortið í umboði fyrirtækisins. Hann tók svo út vörur í verslunum N1 á höfuðborgarsvæðinu fyrir um 100 þúsund krónur á innan við tveimur klukkutímum. Maðurinn blekkti einnig starfsmenn Olís á höfuðborgarsvæðinu og tók út vörur og þjónustu fyrir rúmlega 800 þúsund krónur á mánaðartímabili. Maðurinn kvittaði ávallt undir reikningana með eigin nafni. Þá seldi hann uppþvottavél og ísskáp frá fólki sem hann leigði íbúð hjá og sveik einnig út 600 þúsund krónur út úr fólki sem hugðist taka íbúðina á leigu. Maðurinn játaði brot sín fyrir dómi en dómari segir að brot hans hafi verið umfangsmikil og varði verulegum fjárhæðum. Hann braut skilorð með brotunum og þykir dómara 7 mánaða fangeli hæfileg refsing. Honum til málsbóta játaði hann brot sín og samþykkti að greiða skaðabótakröfur. Þá sé einnig nokkuð liðið frá því að hann framdi flest brotin.
Mest lesið Alelda bíll á Emstruleið Innlent Skotárás á Times Square Erlent Rannsaka ásakanir á hendur ríkissáttasemjara Innlent Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Innlent Rekinn eftir tvo mánuði hjá skattinum og samdægurs tilnefndur sendiherra á Íslandi Erlent „Úkraínumenn þurfa örugglega að gefa eftir land“ Erlent Gefur ekkert landsvæði eftir Erlent Segjast ekkert hafa vitað um hætturnar í Reynisfjöru Innlent Samdráttur og vítahringur í boði stjórnvalda Innlent Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Innlent Fleiri fréttir Taka þurfi ráðgjöf Hafró til endurskoðunar Alelda bíll á Emstruleið Vond niðurstaða Úkraínu, ásakanir á hendur sáttasemjara og síðasta hlaupið Mikill meirihluti hefur áhyggjur af stríðsátökum Rannsaka ásakanir á hendur ríkissáttasemjara Samdráttur og vítahringur í boði stjórnvalda Ekki stafi lengur tilvistarógn af Hamasliðum Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Segjast ekkert hafa vitað um hætturnar í Reynisfjöru Féll fjóra metra í vinnuslysi í Kópavogi Ómeðvitaðir ferðamenn í Reynisfjöru, síbökuð hjón og tölvuspil fram á nótt Enginn árangur af „veiða og sleppa“ aðferðinni Flokkarnir dæla milljónum í áróður á Meta Hræðast að fleiri en einn fari í sjóinn Átökin „hvorki vegna né þrátt fyrir“ áfengissöluna Heitavatnslaust í Laugardal Lést við flúðasiglingar í Vestari-Jökulsá Langflestir telja sig búa á góðum stað fyrir samkynhneigða Áttu ekki von á neinu veseni og viðbúnaður eftir því Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Maður féll í Vestari-Jökulsá Fangar í einangrun vegna sama máls noti ekki sama útisvæði Hundarnir þegar aflífaðir en ákvörðun um lógun ólögmæt Samskipti fanga í einangrun, tapsárir Danir og drottning Gleðigöngunnar Allir fundir við ESB „fyrst og fremst“ hagsmunagæsla Telja að lífvörður myndi aðeins gera ferðamenn kærulausari Esjan snjólaus og það óvenju snemma Íslendingurinn í Grikklandi laus úr haldi Dvalarleyfi langtum dýrara í hinum Norðurlöndunum Lögreglurannsókn á banaslysi í Brúará „svo til“ lokið Sjá meira