Lögreglan varar við tveim meintum þjófum 15. nóvember 2011 03:30 Þjófarnir ásælast einkum skartgripi og fjármuni.
Undanfarna daga hefur verið töluvert um innbrot í heimahús á höfuðborgarsvæðinu og varar lögreglan fólk við vegna þessa. Flest innbrotin eru í sérbýli sem staðsett eru við jaðar byggðar og eru þau dreifð um höfuðborgarsvæðið. Sést hefur til tveggja karlmanna nálægt innbrotsstað, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu, sem hugsanlega eru taldir tengjast málinu. Þeir ganga í hús og bera upp ýmis erindi, að því er virðist til að kanna hvort fólk sé heima við. Öðrum mannanna er lýst sem 180 til 185 cm háum, dökkum yfirlitum en þó ljósum á hörund, dökkhærðum með skallablett. Hann er talinn vera um það bil 35 ára. Hann var í svartri dúnúlpu með hvítum stöfum aftan á. Hinn maðurinn er 20 til 25 ára, grannvaxinn og dökkklæddur. Hugsanlegt er talið að mennirnir séu á rauðri bifreið. Mörg innbrotanna hafa verið framin á tímabilinu frá klukkan 17 til 22 þegar heimilisfólk hefur brugðið sér frá. Þjófarnir fara gjarnan inn um glugga eða svalahurðir á svefnherbergjum og virðist það ekki hafa fælandi áhrif á þá að heimili séu tengd öryggisþjónustu. Þeir eru snöggir og ásælast einkum skartgripi, fé og aðra muni sem auðvelt að er grípa með sér. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hvetur fólk til að vera á varðbergi og koma til lögreglu upplýsingum um grunsamlegar mannaferðir í síma 444-1000.- jss
Mest lesið Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Innlent Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Innlent Klausturbleikjan fæst ekki lengur Innlent Agnes var meira en bara morðingi Innlent Paradís Kushner ógn við aðildarviðræður Albaníu og ESB Erlent Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Innlent Krefjast tafarlausrar stöðvunar hvalveiða Innlent Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Innlent „Skráningum rignir inn“ Innlent Eltur og handtekinn í tengslum við innbrot í apótek Innlent Fleiri fréttir Flúði á Hopp-deilibíl eftir innbrot og ók yfir göngubrú Agnes var meira en bara morðingi Saka ríkisstjórnina um svik Nemendum mismunað með ósamræmi einkunna Krefjast tafarlausrar stöðvunar hvalveiða Eltur og handtekinn í tengslum við innbrot í apótek Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Klausturbleikjan fæst ekki lengur Staðfestir stækkun friðlands við Gróttu og Seltjörn Fjórtán ný félög flytja í Mannréttindahúsið Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Lokuðu götu á Ólafsfirði vegna tilkynningar um skotvopn Fylgi Sjálfstæðisflokks ekki meira í sex ár „Verulegur samdráttur og menn eru að segja upp mannskap“ „Skráningum rignir inn“ Eftirspurn eftir kókaíni virðist aldrei hafa verið meiri Staðfesta fjölskyldutengsl nú með DNA-rannsókn Nýtt innviðafélag hlýtur nafnið Göng og brú Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Rannsókn í gangi á lengd dauðastríðsins Kókaínhaldlagningar komnar í 200 kíló á hálfu ári Tveimur sagt upp á Bifröst Enn eitt fíkniefnametið slegið og yfirvöld hvött til að afturkalla hvalveiðileyfi Rennibrautinni lokað og ljósin skoðuð Hvalur háði hálftíma dauðastríð Hanna Katrín eigi að standa með starfsfólki Hvals – ekki gagnrýna það Gómuð af tollinum með tvo lítra af kókaíni innvortis Sjá meira