138 ferðamenn dáið hér síðan árið 2000 15. nóvember 2011 07:00 Verkefnastjóri hjá Landsbjörg segir að auðvelt hefði verið að koma í veg fyrir mörg slysanna sem orðið hafa á síðustu árum.
Árlega deyja um 12 ferðamenn að meðaltali hér á landi af slysförum. Flest dauðsföllin eru tengd umferðinni en þeim hefur fækkað töluvert á síðustu árum. Alls hafa 138 manns látist á ferðalagi um Ísland síðan árið 2000. Jónas Guðmundsson, verkefnastjóri slysavarna ferðamanna hjá Landsbjörgu, segir að þótt banaslysum hafi fækkað hlutfallslega á síðustu árum séu þau enn of mörg. „Þetta er enn of mikið, það er alveg á hreinu," segir Jónas, sem vann að því fyrir Slysavarnarfélagið Landsbjörg fyrr á árinu að taka saman og greina banaslys í ferðaþjónustu síðasta áratuginn. Notuð var sú skilgreining að viðkomandi hefði verið á ferðalagi frá heimili sínu í að minnsta kosti sólarhring, en einnig tekið inn í ef viðkomandi hefði verið að stunda afþreyingu í dagsferð. Næststærsti flokkurinn utan umferðarslysa er banaslys í almennri ferðamennsku, sem eru 33 talsins, eða um þrjú á ári. Í grein sem Jónas skrifaði fyrr á þessu ári segir hann að nauðsynlegt sé að hafa í huga að ferðamönnum hafi fjölgað hér á landi á síðustu árum og því hafi slysum fækkað hlutfallslega. Hann segir þó að brýnt sé að huga að forvörnum er varða náttúru landsins, þar sem rúm 80 prósent ferðamanna koma hingað til lands vegna náttúrunnar. „Svo mörg af þessum slysum eru sárgrætilega óþörf," segir hann og nefnir þar atvikið sem átti sér stað um síðustu helgi þegar ungur Svíi lét lífið á Sólheimajökli. „Hvort sem það var hans að vita eða okkar að fræða, þá eiga menn að vita að fara ekki upp á íslenskan skriðjökul nema á mannbroddum. Og helst ekki nema í för með ferðaþjónustuaðilum." Jónas segir að með handstýringu ferðamanna, enn frekari reglugerðum og lagasetningum og aukinni fræðslu ætti að vera hægt að fækka slysum og dauðsföllum á ferðalögum hér á landi. sunna@frettabladid.is
Mest lesið „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Innlent Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Innlent Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali Innlent Fleiri fréttir Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Sjá meira