Minnimáttarkennd vék fyrir yfirburðahyggju 15. nóvember 2011 12:35 Sumarliði R. Ísleifsson.
Ísland og ímyndir norðursins er heiti bókar sem er afrakstur fjögurra ára rannsóknarverkefnis íslenskra og erlendra fræðimanna. Sumarliði R. Ísleifsson, ritstjóri bókarinnar, segir bæði horft til fortíðar og samtímans í greinum fræðimannanna. „Það eru nokkrir þræðir sem eru sameiginlegir þegar horft er á hvernig Íslandi er lýst í gegnum tíðina. Í fyrsta lagi má segja að landfræðilegar aðstæður, það að Ísland er eyja, hafi áhrif á það hvernig landinu er lýst en það eru sameiginlegir drættir í lýsingum á eyjum, hvar sem þær eru í heiminum. Svo má segja að norðrið, hið ímyndaða norður, hafi mikil áhrif. Fyrir 200 árum voru lýsingar á Grænlandi og Íslandi til að mynda mjög líkar. Svo má nefna smæðina sem litar frásagnir af landinu," segir Sumarliði R. Ísleifsson, ritstjóri bókarinnar Iceland and Images of the North, sem er nýkomin út í samstarfi Reykjavíkurakademíunnar og Háskólans í Québec. Bókin er afrakstur rannsóknarverkefnis sem sett var á laggirnar árið 2007. Rannsóknarefnið var Ísland og ímyndir norðursins og í hópnum voru bæði íslenskir og erlendir fræðimenn með fjölbreytilegan bakgrunn á sviði hugvísinda. Sumarliði segir margbreytileikann ánægjulegan, fræðimenn úr ólíkum geirum eigi oft erfitt með að ná saman en það hafi tekist afar vel til að þessu sinni. Í bókinni er bæði fjallað um hvernig ímyndir verða til og þróast sögulega en einnig hvernig þessar ímyndir birtast í samtímanum. Sumarliði segir áhugavert hversu stóran hlut sjálfsmyndar Íslendinga megi rekja til rómantískra hugmynda 19. aldarinnar. „Þýska rómantíkin og þjóðernishyggja 19. aldarinnar móta að miklu leyti hugmyndir manna um Ísland í dag. Samkvæmt þessum hugmyndum hafa Íslendingar varðveitt kjarna norrænnar menningar, eru víkingar til orðs og æðis." Þessar hugmyndir verða svo órjúfanlegur þáttur íslenskrar sjálfsmyndar, sem að sögn Sumarliða einkenndist af mikilli minnimáttarkennd um aldamótin 1900. „Um 1920 verður til hugtak í Þýskalandi um hina heilögu eyju í norðri. Yfirburðahyggjan átti svo eftir að rata víða. Hún er stór þáttur í kennslubókum Jónasar frá Hriflu í sögu og hún var sannarlega til staðar í umræðunni um íslensku útrásarvíkingana." Ímynd íslands í framhaldi hrunsinsHópurinn sem stendur að bókinni Iceland and Images of the North stendur fyrir málþingi í Norræna húsinu í dag klukkan 15. Á málþinginu verður rætt um ímyndir Íslands og munu þátttakendur í pallborði velta fyrir sér hvort hrunið hafi haft einhver áhrif á ímynd Íslands. Málþingið hefst á því að Sumarliði Ísleifsson kynnir bókina og hugmyndafræði hennar. Kristinn Schram, forstöðumaður Þjóðfræðistofu á Ströndum, flytur opnunarerindi en í pallborði sitja Ólöf Ýrr Atladóttir ferðamálastjóri, Jón Karl Helgason, dósent við Háskóla Íslands, Tinna Grétarsdóttir mannfræðingur og Inga Hlín Pálsdóttir, forstöðumaður markaðssóknar Íslandsstofu. Umræðustjóri er Viðar Hreinsson, stjórnarformaður RA. Málþinginu lýkur klukkan 17.
Mest lesið Reyndist fjölmennt matarboð „þar sem gleðin var við völd“ Innlent „Það nægir ekki ESB að rústa eigin iðnaðarframleiðslu“ Innlent Skógasafn vill Gunnfaxa en beðið svara eigenda Innlent Leita leiða til að kveða ranglega útgefnar sektir í kútinn Fréttir Segir eðlilegast að strandveiðiheimildir verði fyrir utan alla potta Innlent „Góðu fréttirnar eru að það sem hann segir skiptir engu máli“ Erlent Vill bjóða borgarstjóra í vöfflukaffi eftir deilurnar Innlent Áfram gýs úr einum gýg Innlent Mikið viðbragð vegna umferðarslyss Innlent Ósammála Náttúrufræðistofnun og segja veiðar á lunda forsvaranlegar Innlent Fleiri fréttir Segir eðlilegast að strandveiðiheimildir verði fyrir utan alla potta Reyndist fjölmennt matarboð „þar sem gleðin var við völd“ Skógasafn vill Gunnfaxa en beðið svara eigenda Áfram gýs úr einum gýg „Það nægir ekki ESB að rústa eigin iðnaðarframleiðslu“ Vill bjóða borgarstjóra í vöfflukaffi eftir deilurnar Ósammála Náttúrufræðistofnun og segja veiðar á lunda forsvaranlegar Eldri borgarar í Vogum leiddu knattspyrnumenn inn á völlinn ESB leggur til tolla á Ísland: „Þetta er bara tillaga sem er á borðinu“ Uppsagnir sjómanna í Grindavík: „Hvenær er nóg, nóg?“ Vilja innlima Vesturbakkann og deilu um göngustíg lýkur með vöfflum Handtekinn vegna ólöglegs vopnaburðar Bilun í flugstjórn olli um tveggja tíma seinkun Mikið viðbragð vegna umferðarslyss Keyrt á íslenska stráka á Ólympíuhátíð Ekki þeir sömu og voru handteknir vegna fyrri þjófnaðarins Minni helst á þjóðarmorð Serba á múslimum í Bosníu Hneig niður vegna flogakasts Tekist á um þéttingu byggðar: „Þá getur þú bara flutt til Kaupmannahafnar“ Lögreglan leitar tveggja manna Frakkar viðurkenna Palestínu og stjórnarandstaðan á Alþingi mælist illa í nýrri könnun Óánægja með stjórnarandstöðuna eykst hressilega Amgen sver af sér njósnir um starfsfólk Íslenskrar erfðagreiningar Hundurinn gerði vart um mann sem stóð og starði inn Hægt nokkuð á virkninni frá því í gærmorgun Aron Can heill á húfi „Sorglega lítið eftir“ þegar sundkappinn var stöðvaður Ljóst að stjórnarandstaðan græddi ekki á „kjarnorkuákvæðinu“ Ólíðandi að fá sektir aftur og aftur Svona vindmyllur vill ráðherra fá samþykktar ofan Gilsfjarðar Sjá meira