Friðar flugturn í óþökk flugyfirvalda 2. apríl 2011 09:15 Gamli flugturninn Auk flugmálayfirvalda hefur umhverfissvið Reykjavíkurborgar lagt til að flugturninn verði fjarlægður í þágu flugöryggis en húsafriðunarnefnd er á öðru máli. Fréttablaðið/Teitur
Húsafriðunarnefnd leggur til við Katrínu Jakobsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra, að hún friði gamla flugturninn á Reykjavíkurflugvelli. Flugmálastjórn og Isavia, sem rekur flugvöllinn, leggjast eindregið gegn því að turninn standi áfram á sínum stað. „Ástæða þess að Isavia leggst gegn þessu er að flugturninn er hindrun í flugbrautaröryggissvæði og því frávik frá öryggisreglum að hafa hann áfram á þeim stað þar sem hann er nú,“ segir Hjördís Guðmundsdóttir, upplýsingafulltrúi Isavia. Hjördís undirstrikar að Isavia leggist eingöngu gegn friðun turnsins á núverandi stað. „Isavia gerir hins vegar ekki athugasemd við að turninn verði fjarlægður og enduruppbyggður á öðrum heppilegri stað í nágrenni flugvallarins eða annars staðar,“ segir hún. Meðal ábendinga sem Húsafriðunarnefnd hefur fengið frá flugmálayfirvöldum er að jafnvel þótt turninn yrði friðaður og hann gerður upp myndi almenningur ekki geta notið hans. Ástæðan sé sú að byggingin sé á skilgreindu öryggissvæði sem óviðkomandi hafi ekki aðgang að. Húsafriðunarnefnd segir hins vegar að óumdeilt sé að í aðalskipulagi Reykjavíkur fyrir árin 2001 til 2024 sé ákvæði um brottflutning flugvallarstarfsemi úr Vatnsmýrinni. Nefndinni beri „að stuðla að varðveislu byggingararfs þjóðarinnar og meta hvaða hús er rétt að friða hverju sinni og gera um það tillögur til mennta- og menningarmálaráðherra“.- gar
Mest lesið Játaði meira og meira eftir því sem á leið Innlent Trump fer í fýlu og dregur boð sitt til Carney til baka Erlent Landsleikir á vinnutíma fela í sér tækifæri Innlent „Þetta er svolítið óvenjulegt, ég er ekki á þingi“ Innlent Rússar, Úkraínumenn og Bandaríkjamenn funda í fyrsta sinn við sama borð Erlent Viðurkenna loks, fyrir mistök, að Úkraínumenn hafi sökkt Moskvu Erlent „Við getum gert það sem við viljum“ Erlent Kom ekki á teppið Innlent Repúblikanar leita aftur á náðir Musks Erlent Hiti færist í leikinn: „Frægur karl með enga reynslu“ Innlent Fleiri fréttir Endurtekin og alvarleg mál valda áhyggjum Hiti færist í leikinn: „Frægur karl með enga reynslu“ Samfylkingarmönnum í Reykjavík fjölgað um 72 prósent Heimilisofbeldismálin alvarlegri en áður og fundað um Úkraínu í Abu Dhabi Pallborðið: Síðasta einvígið Játaði meira og meira eftir því sem á leið Fann innbrotsþjófinn sofandi á heimilinu Nú geta íbúar skráð sjálfir hvað megi betur fara í borginni „Þetta er svolítið óvenjulegt, ég er ekki á þingi“ Landsleikir á vinnutíma fela í sér tækifæri Pétur vill leiða Viðreisn í Kópavogi Kom ekki á teppið Landsvirkjun hyggst bjóða út alla verkþætti Hvammsvirkjunar í ár Lilja sækist eftir því að leiða Framsókn Willum fer ekki fram og styður Lilju Foreldrarnir vissu ekki af kynferðisofbeldinu Magnea vill hækka sig um sæti Vissu ekki af kynferðisbrotinu fyrr en lögreglan hafði samband Fengið svör frá Bandaríkjunum um Íslandsyfirlýsingar Trumps Laugarnestangi friðlýstur sem menningarlandslag Mesti fjöldi í sögu bráðamóttökunnar Leita manns vegna kynferðisbrots við Austurbæjarbíó Sósíalistar sendu nær allar tekjur í félög tengdum fyrri stjórn Mætast í Pallborðinu á lokasprettinum Kafað í óbirta og umtalaða skýrslu um Félagsbústaði Rannsóknaskipin gera hlé á loðnuleit vegna óveðurs Viðreisn býður fram undir merkjum Samfylkingar Þrjú erlend her- og varðskip í Reykjavík Ósammála um hvort lögregla hafi gefið fyrirmæli „Ég á þetta og má þetta“ Sjá meira