Sjö drepnir og tveir afhöfðaðir vegna bókabrennu í Flórída 2. apríl 2011 11:26 Myndin er úr safni.
Mikil ólga er í norðurhluta Afganistan eftir að fregnir bárust að kristinn klerkur brenndi Kóraninn í Flórída í fyrr í vikunni. Samkvæmt heimasíðu breska blaðsins Guardian þá voru sjö starfsmenn Sameinuðu þjóðanna drepnir í borginni Mazar-e-Sharif eftir að ofbeldisfull mótmæli hófust vegna bókabrennunnar. Fjórir þeirra sem voru drepnir voru öryggisverðir. Meðal þeirra sem létu lífið var 33 ára gömul sænsk kona, sem starfaði á skrifstofu Sameinuðu þjóðanna. Tveir af þeim sjö sem voru drepnir, voru afhöfðaðir. 20 mótmælendur voru handteknir í nótt í borginni, sem þykir friðsæl að öllu jöfnu. Það var klerkurinn Terry Jones sem kom að brennunni. Hann varð heimsfrægur á síðasta ári þegar hann tilkynnti að hann ætlaði að brenna Kóraninn í tilefni af því að níu ár væru liðin frá hinni örlagaríku hryðjuverkaárás þann 11. september árið 2001. Þá hætti hann við brennuna eftir að David Petraeus, hershöfðingi bandaríska hersins í Afganistan, bað hann um að láta af brennunni af ótta við óeirðir í Afganistan. Kirkjan hans Terrys lét hinsvegar verða af bókabrennunni í síðasta mánuði, og var klerkurinn sjálfur viðstaddur samkvæmt Guardian.
Mest lesið Óku á yfir 60 og missa ökuréttindin Innlent Hreinsanir hafnar í Íran Erlent Twitter-morðinginn tekinn af lífi Erlent Sagði Sean Combs ekki virða svarið „Nei“ Erlent Stjúpsonur norska krónprinsins grunaður um nauðganir Erlent Ákærð fyrir að frelsissvipta dreng eftir dyraat Innlent Svona verða bílastæðagjöldin hjá Háskóla Íslands Innlent Stærsti árgangur sögunnar fer í framhaldsskóla: „Það verður þétt setið í skólastofunni“ Innlent Gerðu úttekt á skrifstofu Ríkissáttasemjara Innlent Hætta á að Gjögurtáarviti falli í sjóinn Innlent Fleiri fréttir Finna fyrir fjarveru Bandaríkjanna á loftslagsfundi en sakna þeirra ekki Ungar konur særðust í skotárás í Nuuk Sá sem samdi Mission: Impossible lagið er látinn Stjúpsonur norska krónprinsins grunaður um nauðganir Dönsk stjórnvöld vilja tryggja fólki höfundarrétt að eigin persónu Stígur fram og segir Írani hafa löðrungað Bandaríkin „Áreiðanleg gögn“ sanni verulegt tjón á kjarnorkumannvirkjum Hvar er Khamenei? Ný ráðgjafarnefnd Kennedy hyggst endurskoða bólusetningar barna Stofna sérstakan dómstól vegna árásarglæpa Rússa Segist funda með ráðamönnum Íran í næstu viku Trump íhugar að láta Úkraínumenn fá fleiri Patriot-kerfi Kristrún missti af fundi með Selenskí Tók í spaðann á Trump: „Hann er nú heillandi, karlinn“ Segir Spánverja munu borga fyrir að borga ekki nóg Lögðu grunninn að „sterkara, sanngjarnara og banvænna“ NATO Telur engan vafa um að Bandaríkin verji bandamenn sína Biðst afsökunar á gyðingahatri Svíþjóðardemókrata Diddy ætlar ekki að bera vitni Trump gefur lítið fyrir Pentagon skýrsluna og segir árásina hafa heppnast fullkomlega 33 ára sósíalisti hafði betur gegn Cuomo í New York Bretar eignast aftur herþotur sem geta flutt kjarnorkuvopn Myndaveisla: Fyrsti dagur leiðtogafundar Atlantshafsbandalagsins Æsispennandi forval: Framtíð Demókrataflokksins gæti ráðist í New York Átök í Miðausturlöndum: „Erfitt að meta hvað er í raun og veru í gangi“ Ný skýrsla: Bandaríkjunum mistókst að eyðileggja kjarnorkumannvirki Írana „Þrátt fyrir allan þennan vígbúnað þá er þetta mjög vinalegt“ „Honum fylgir auðvitað ákveðinn ófyrirsjáanleiki“ Óbreyttir borgarar féllu í árásum Rússa á úkraínskar borgir Íranir neita að hafa skotið eldflaugum Sjá meira