Hefur selt 150 þúsund matreiðslubækur 21. október 2011 11:00 Jói Fel hefur selt bækur sínar í tæplega 150 þúsund eintökum undanfarin ár. fréttablaðið/gva
Bakarameistarinn Jói Fel, eða Jóhannes Felixson, hefur selt matreiðslubækur sínar í tæplega 150 þúsund eintökum undanfarin ár. Aðallega er um að ræða fjórar Hagkaupsbækur hans og hafa þær að meðaltali selst í yfir 35 þúsund eintökum hver. Að auki hefur bókin Eldað með Jóa Fel sem kom út fyrir síðustu jól og hafði að geyma 400 uppskriftir úr samnefndum sjónvarpsþáttum hans, selst í um sex þúsund eintökum. Hún var ein söluhæsta matreiðslubók síðasta árs. „Ég er ekki hættur enn, því ég er skrifa nýja bók,“ segir Jói Fel hress, en hún er væntanleg á næsta ári. Hann verður því fjarri góðu gamni í jólabókaflóðinu í ár. Jói Fel hefur verið fastagestur á íslenskum heimilum frá árinu 2003 þegar matreiðsluþættir hans hófu göngu sína á Stöð 2. Þeir eru nú orðnir um eitt hundrað talsins. Hann nýtur því að einhverju leyti góðs af því hversu þekkt andlit hann er þegar matreiðsla er annars vegar. Þrátt fyrir að Jói verði fjarri góðu gamni fyrir jólin verða Nanna Rögnvaldsdóttir, Friðrika Geirsdóttir og kokkalandsliðið það ekki. Þau snúa öll aftur með matreiðslubækur fyrir þessi jól eftir að hafa selt síðustu bækur sínar vel í sumar og fyrir síðustu jól, eða í tæpum tólf þúsund eintökum samanlagt. Smáréttir Nönnu hafa selst í um þrjú þúsund eintökum, Bollakökur Rikku í um fjögur þúsundum og Einfalt með kokkalandsliðinu í um 4.500 eintökum Ný bók Nönnu nefnist Jólamatur Nönnu og kemur út hjá Iðunni. Bók Rikku, sem er gefin út af Vöku Helgafell, nefnist Heimsréttir Rikku og Sögur útgáfa gefur svo út Einfalt og íslenskt með kokkalandsliðinu. Meðal annarra matreiðslubóka sem koma út í ár eru Gott líf – góður matur í takt við árstíðirnar eftir hjónin Ingu Elsu Bergþórsdóttur og Gísla Egil Hrafnsson, þýdd bók Rósu Guðbjartsdóttur Einfaldara sushi og Uppáhaldsrétturinn minn þar sem fjörutíu Íslendingar gefa uppskrift af uppáhaldsréttinum sínum. Nanna Rögnvaldardóttir hefur ritstýrt matreiðslubókum lengi fyrir Forlagið en sjálf hefur hún selt eigin bækur í um sjötíu þúsund eintökum. Spurð út í þennan mikla áhuga Íslendinga á matreiðslubókum, segir hún hann ekki vera bundinn við Ísland. „Það héldu mjög margir þegar þetta fór meira inn á netið að bækurnar myndu detta út en raunin er sú að sala á matreiðslubókum fer vaxandi alls staðar,“ segir Nanna. „Hluti af því eru auknar myndskreytingar. Fólk er að kaupa bækurnar dálítið mikið til að skoða, fá hugmyndir og til að láta sig dreyma kannski um hvað gæti gerst og auðvitað til að nota líka.“ Til marks um þennan áhuga fór hún nýverið á bókamessuna í Frankfurt þar sem matreiðslubækur voru mjög áberandi. freyr@frettabladid.is
Mest lesið Íslensk hjón búa umkringd öryggisvörðum Lífið Föst með dauða tölvu og reynir að undirbúa stjórnarfund Lífið Dorrit ánægð með demantsklædda Kylie Tíska og hönnun Magnús Kjartan leggur brekkusönginn á hilluna Lífið Kveður Emily fyrir Audrey Hepburn Lífið Eyþór Arnalds og Ástríður bíða eftir barni Lífið Körfuboltaþjálfari selur á Nesinu Lífið KK aldrei borgað minna í húsnæðislán en þegar Bjarni var ráðherra Lífið Lizzie McGuire-stjarnan Robert Carradine látinn Lífið Afhjúpa þemað fyrir tískuveislu ársins Tíska og hönnun Fleiri fréttir KK aldrei borgað minna í húsnæðislán en þegar Bjarni var ráðherra Kveður Emily fyrir Audrey Hepburn Íslensk hjón búa umkringd öryggisvörðum Körfuboltaþjálfari selur á Nesinu Lizzie McGuire-stjarnan Robert Carradine látinn Föst með dauða tölvu og reynir að undirbúa stjórnarfund Magnús Kjartan leggur brekkusönginn á hilluna „Íslensk snjókoma“ og ruslabílarnir nýttir í moksturinn Farin frá Form Henti keilukúlu, melónu og örbylgjuofni niður úr átta metra hæð Sneri lífi sínu við eftir að faðir hans fyrirfór sér Eyþór Arnalds og Ástríður bíða eftir barni Stjörnulífið: Sjóðheitar í gusugufu Flestir fróa sér til viðbótar við kynlíf með maka „Hugurinn skiptir öllu máli“ Við erum tengdari en nokkru sinni en höfum aldrei verið jafn einmana Fékk yfir hundrað skilaboð á dag Krakkatía vikunnar: Bollur, sólmyrkvar og skilti Yfirgefinn apaungi finnur huggun í apabangsa úr Ikea Áhorfið rýkur upp þegar minnst er á Ísland Frægðin steig Magna til höfuðs en aðeins í skamma stund Minnist sonar síns og styður við börn í sorg Fréttatía vikunnar: Lilja, eitur og krulla Bleikar kollur, gellur og gaurar Einn sá efnilegasti ætlar að verða sá fyrsti inn á Ólympíuleika Halla Vilhjálms flutt í Fossvoginn Á leið á flugvöllinn þegar fluginu var flýtt Hitti Gísla á Uppsölum á skyggnilýsingafundi Frá einni ofurbombu til annarrar Eric Dane er látinn Sjá meira