Innlent

Þjóðhátíðarnauðgarinn dæmdur í fimm ára fangelsi

Birkir Árnason var dæmdur í fimm ára fangelsi í Héraðsdómi Suðurlands í gær fyrir kynferðisbrot gegn konu á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum í ágúst síðastliðnum.

Birkir ýtti konunni inn á salerni og reyndi að koma vilja sínum fram við hana. Hún komst undan manninum en hann elti hana uppi, náði henni og neyddi hana með ofbeldi aftur inn á salernið þar sem hann nauðgaði henni.

Birki er gert að greiða konunni 1200 þúsund krónur í miskabætur fyrir árásina. Hann hefur áður verð dæmdur fyrir samskonar kynferðisbrot þegar hann nauðgaði konu í tjaldútilegu árið 2006.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×