Innlent

Ólafur Ragnar og Dorrit heimsóttu Ground Zero

Mynd/AP
Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff tóku í morgun þátt í minningarathöfn á Ground Zero um þá sem létust í árásunum á Tvíburaturnana 11. september 2001. Í tilkynningu frá forsetaembættinu segir að auk forsetahjóna hafi Haraldur Noregskonungur og Sonja drottning, Karl Gústav Svíakonungur og Silvía drottning, Tarja Halonen, forseti Finnlands og Friðrik krónprins Danmerkur og Mary krónprinsessa tekið þátt í athöfninni ásamt sendiherrum landanna og embættismönnum.

„Þjóðhöfðingjarnir vottuðu fórnarlömbum árásanna og ættingjum þeirra og vinum virðingu og samúð norrænna þjóða. Þá skoðuðu þjóðhöfðingjarnir hið nýja minnnismerki um þá sem létust í árásinni en Obama, forseti Bandaríkjanna, vígði minnismerkið í september síðastliðnum. Þar eru skráð nöfn allra sem létust,“ segir ennfremur.

Í kvöld verður hátíðarsamkoma í tilefni af aldarafmæli Norrænu stofnunarinnar í Bandaríkjunum, American Scandinavian Foundation. „Þjóðhöfðingjarnir munu ásamt um 1000 velunnurum Norðurlanda og áhrifafólki frá Norðurlöndum í Bandaríkjunum taka þátt í samkomunni. Norræna stofnunin hefur verið helsti vettvangurinn fyrir kynningu á menningu og listum, þjóðlífi, sögu og atvinnulífi norrænna þjóða í Bandaríkjunum. Mikill fjöldi Íslendinga hefur komið þar við sögu á undanförnum áratugum,“ segir ennfremur en stofnunin rekur auk þess Norræna húsið í New York og veitir árlega ungu fólki frá Norðurlöndum, listafólki og fræðimönnum fjölda styrkja.

„Margir Íslendingar búsettir í Bandaríkjunum hafa verið í forystu ASF og var Kristján Ragnarsson læknir formaður stofnunarinnar fyrir nokkrum árum,“ segir að lokum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×