Gagnrýnir afstöðu OR til Bitru 21. október 2011 15:38
Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur fékk kynningu á umsögn fyrirtækisins um Rammaáætlun Alþingis í dag. Sóley Tómasdóttir, oddviti borgarstjórnarflokks Vinstri grænna segir í tilkynningu að helsta gagnrýni Orkuveitunnar á áætlunina felist í því að Bitra skuli vera sett í verndarflokk en ekki biðflokk, enda sé það hagsmunamál fyrir fyrirtækið að geta virkjað á svæðinu í framtíðinni. Sóley var efnislega ósammála umsögninni og átaldi harðlega að hún væri send í nafni fyrirtækisins án samþykkis stjórnar sem sannarlega fer með stefnumótunarhlutverk og er pólitísk skipuð. Bókunin var svohljóðandi: Fulltrúi Vinstri grænna gerir alvarlegar athugasemdir við verklag og efni umsagnar fyrirtækisins vegna þingsályktunartillögu um áætlun um verndun og orkunýtingu landssvæða. Það er með öllu óásættanlegt að umsagnir við lagafrumvörp séu unnar og sendar af hálfu stjórnenda fyrirtækisins án aðkomu og samþykkis stjórnar. Umsögn um rammaáætlun er stórpólitískt og stefnumótandi viðfangsefni og á ekki að vera í höndum starfsfólks Orkuveitunnar, enda ber því að vinna í samræmi við stefnu og áherslur stjórnar hverju sinni. Skipulagsstofnun hefur kveðið skýrt á um að bygging Bitruvirkjunar myndi hafa veruleg neikvæð og óafturkræf áhrif á landslag, útivist og ferðaþjónustu. Í kjölfar þess álits var ákveðið í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur að hætta við framkvæmdir á svæðinu og stendur sú ákvörðun enn. Ekkert bendir til þess að framkvæmdir framtíðarinnar myndu hafa minni áhrif og ekkert bendir til þess að stórbrotið landslag á svæðinu komi til með hafa minna gildi sem ósnortið til framtíðar. Það er því ómögulegt að fallast á tillögu um að Bitra verði færð úr verndarflokki í biðflokk. Þvert á móti ætti að fara fram á að gengið yrði lengra í verndun Hengilssvæðisins. Má þar helst nefna Innstadal sem er ómetanlegt náttúrusvæði og ætti helst heima með Bitru í verndarflokki. Fulltrúi Vinstri grænna áréttar að umsögn sú sem hér hefur verið lögð fram er ekki unnin með vilja allrar stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur og fer fram á að bókun þessi verði send með umsögninni.
Mest lesið Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Innlent Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Innlent Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Innlent Eldur olli miklum skemmdum í kjallara Innlent Launahækkun Höllu illskiljanleg Innlent Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Erlent Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent Nánast búin með stafrófið Innlent Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Erlent Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Innlent Fleiri fréttir Ný könnun og frægasti köttur landsins Kona flutt á sjúkrahús eftir bruna í kjallaraíbúð Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Eldur olli miklum skemmdum í kjallara „Hræðsluáróður, stagl og þvæla sem stjórnarandstaðan ætlar að keyra á“ Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Nánast búin með stafrófið Útlit fyrir flókna meirihlutamyndun í borginni Launahækkun Höllu illskiljanleg Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Öll tólf mánaða börn fá leiksskólapláss í Kópavogi Vilja að fullorðnir lofi að búa til rými þar sem börn geta sagt frá Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Bein útsending: Samtal um atvinnustefnu og aðgerðir í þágu verðmætasköpunar Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Inga sendir boltann á sveitarfélögin „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Vill verja hundruðum milljóna í þegar dýrt leikskólakerfi „Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Þúsundir karla byrla eiginkonum sínum og nauðga Sjá meira