Tæpir 700 milljarðar segjum við já 2. ágúst 2011 09:00 Steingrímur J. Sigfússon
Samkvæmt rökstuddu áliti ESA þurfa Íslendingar að greiða 670 milljarða króna fyrir 10. september vegna Icesave-skuldbindinga, fallist þeir á álitið. Nú er unnið að rökstuðningi gegn því í efnahags- og viðskiptaráðuneytinu. Greiðsla er ekki hafin úr þrotabúi Landsbankans vegna Icesave. Stafar það af því að Hæstiréttur á eftir að taka fyrir dómsmál sem dæmd voru í héraði í vor og tengjast búinu. Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra vonast til þess að málin verði tekin fyrir strax að loknu dómshléi nú í ágúst. „Við eigum náttúrulega tvo kosti í stöðunni; að fallast á álit ESA, en í því stendur að við eigum að greiða 670 milljarða fyrir 1. september, sem ég veit nú ekki alveg hvaðan við eigum að taka. Hinn kosturinn er að gera ágreining áfram við ESA.“ Steingrímur vonast til að skuldin greiðist niður á næstu mánuðum þegar sala hefst úr þrotabúinu. Þá sjái allir, Bretar, Hollendingar og heildsöluinnlánshafar, að þeir fái peningana sína til baka og það bæti andrúmsloftið. „Það er athyglisvert að þegar úrskurður ESA kom deplaði enginn auga yfir því hvað hann þýddi á mannamáli. Hann þýddi náttúrulega það að ef við ætluðum ekki að gera ágreining við ESA þyrftum við að standa skil á þessari fjárhæð, 670 milljörðum.“- kóp
Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Erlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Innlent Orbán hættir á þingi Erlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Fleiri fréttir Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sjá meira