Byrjað að moka í hverfunum 29. desember 2011 10:54 Björgunarsveitir aðstoðuðu einstaklinga á leiðinni í vinnuna í morgun. Mynd / María Worms „
Ég er að horfa hérna út um gluggann. Það er eiginlega ömurlegt að horfa á þetta," segir Þorsteinn Birgisson, yfirmaður þjónustumiðstöðvar Framkvæmda- og eignasviðs Reykjavíkurborgar. Um 50 gröfur og snjóruðningstæki eru að störfum víðsvegar um borgina vegna mikillar ofankomu. Snjórinn er um 40 sentímetra djúpur. Þorsteinn segir að það sé búið að ryðja flestar stofnleiðir í borginni. Þá er einnig búið að ryðja að flestum leikskólum borgarinnar. Starfsmenn borgarinnar eru byrjaðir að ryðja götur í öllum hverfum borgarinnar að sögn Þorsteins, sem treystir sér ekki til þess að fullyrða hvenær verkinu verður lokið, þá ekki síst vegna þess að það snjóar enn af krafti. Hann segir starfsmenn borgarinnar reyna eins og þeir geta að ryðja borgina og á sem skemmstum tíma. Þorsteinn stefnir að því að birta upplýsingar á vef Reykjavíkurborgar fyrir hádegi, svo stendur til að uppfæra þær upplýsingar reglulega í dag. Spurður hvort færðin hafi komið borgarstarfsmönnum í opna skjöldu, svarar Þorsteinn því til að svo hafi ekki verið. Borgin samdi við þrjú fyrirtæki um snjómokstur auk þess sem borgarstarfsmenn ryðja sjálfir. Því ætti verkefnið ekki að vera borginni ofviða, þó það gæti sóst hægt miðað við veðrið, eins og það er núna. Þorsteinn biður fólk líka um að sýna þolinmæði. Hann segist þegar hafa fengið nokkra pósta frá bálreiðum einstaklingum.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Sjá meira